Category Archives: Fréttir

Sviðaveisla FEB, Örn Árnason skemmtir

Hin sívinsæla sviðaveisla FEB verður haldin í sal félagsins í Stangarhyl 4, laugardaginn 1. nóv. frá kl. 12:00 -14:00. Húsið opnar kl. 11:30 en borðhald hefst kl. 12:00. Það er Veislulist sem töfrar fram sviðakjamma, sviðasultu, saltkjöt og viðeigandi meðlæti og veislustjóri verður enginn annar en Örn Árnason leikari, eins og oft áður. Við höfum einstaklega góða reynslu af…

Málþing á vegum LEB – Ofbeldi er ógn

FEB vill vekja athygli félagsmanna á Málþingi sem Landssamband eldri borgara (LEB) stendur fyrir um ofbeldi gegn eldra fólki, sem haldið verður í beinu streymi, fimmtudaginn 16. október milli kl. 10:00 og 16:00. OFBELDI ER ÓGN – TRYGGJUM ÖRYGGI ELDRA FÓLKS MÁLÞING UM OFBELDI GEGN ELDRA FÓLKI Fimmtudaginn 16. október 2025, kl. 10:00 – 16:00…

Vegna gríðarlegrar aðsóknar bíður FEB upp á fleiri námskeið í gervigreind

Vilt þú kynnast gervigreindinni ChatGPT? FEB hefur fengið til sín Stefán Atla Rúnarsson, sem er mikill áhugamaður um gervigreind, til að vera með hagnýtt og aðgengilegt byrjendanámskeið um helstu möguleika gervigreindarinnar ChatGPT. Mikill áhugi hefur verið fyrir þessu námskeiði og höfum við fyllt húsið aftur og aftur – hafa þátttakendur verið afar ánægðir að námskeiði loknu, það þykir mjög…

Vilt þú kynnast gervigreindinni ChatGPT?

Uppselt er  á byrjendanámskeiðið um gervgreind. Við erum að vinna í því að halda fleiri slík námskeið og munum við setja inn frétt um leið og dagsetningin er orðin klár. FEB hefur fengið til sín Stefán Atla Rúnarsson, sem er mikill áhugamaður um gervigreind, til að vera með hagnýtt og aðgengilegt byrjendanámskeið um helstu möguleika…

Aðventuferð til Berlínar EÐA Heidelberg

Vilt þú koma með FEB-ferðum í aðventuferð til Berlínar eða Heidelberg? FEB-ferðir bjóða upp á eina ferð til Berlínar og aðra til Heidelberg, fyrir næstu jól. Nú fer hver að verða síðastur að bóka sig. Berlín – aðventuferð (24. til 28. nóv.) FEB-ferðir í samvinnu við ferðaskrifstofuna Betri Ferðir bjóða enn og aftur upp á hina…

Kóræfingar eru að byrja að nýju eftir sumarfrí

Það er ávallt glatt á hjalla í húskynnum FEB síðdegis á miðvikudögum en þá koma kátir félagar kórs FEB saman og syngja undir stjórn Kristínar Jóhannesdóttur. Fyrsta æfing kórsins í haust verður miðvikudaginn 24. september kl. 16:30. Æft er einu sinni í viku allan veturinn með góðu jólafríi. Það vantar alltaf nýja áhugasama kórfélaga og…