FEB boðaði til opins félagsfundar í sal FEB þann 17. apríl s.l. í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Góð aðsókn var á fundinn, bæði í húsakynnum FEB og í beinu streymi á netinu og má finna upptöku af fundinum HÉR (fundurinn hefst þegar tíminn er 11:18).
Á fundinn voru boðaðir allir oddvitar þeirra framboða sem bjóða fram í borgarstjórnarkosningunum þann 16. maí n.k. FEB lagði áherslu á að flokkarnir kæmu fram með heildstæða stefnu og skýra tímasetta áætlun um aðgerðir í málefnum eldra fólks til skemmri og lengri tíma.
Um pallborðsumræður voru að ræða og var Bogi Ágústsson fyrrverandi fréttastjóri RÚV fundarstjóri.

