Borgarstjórnarkosningar vorið 2026 og FEB

FEB boðar til opins félagsfundar í Ásgarði sal FEB í Stangarhyl 4, föstudaginn 17. apríl kl. 14:00 í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga.

Á fundinn eru boðaðir allir oddvitar þeirra framboða sem bjóða fram í borgarstjórnarkosningunum þann 16. maí n.k.  FEB  leggur áherslu á að flokkarnir komi fram með heildstæða stefnu og skýra tímasetta áætlun um aðgerðir í málefnum eldra fólks til skemmri og lengri tíma.

Um pallborðsumræður verður að ræða og verður Bogi Ágústsson fyrrverandi fréttastjóri RÚV fundarstjóri. Allir félagsmenn eru velkomnir meðan húsrúm leyfir en einnig er bent á að fundinum verður streymt og hann tekinn upp og aðgengilegur á heimasíðu félagsins í nánustu framtíð.

Til að fara inn á streymið er smellt HÉR

Einnig er hægt að fylgjast með fundinum í gegnum Facebooksíðu FEB eða HÉR