Námskeið um gervigreindina ChatGPT aftur komið á dagskrá hjá FEB

Eftir fjölda vel heppnaðra gervigreindarnámskeiða haustið 2025 og snemma árs 2026 hefur FEB enn á ný fengið til sín Stefán Atla Rúnarsson til að vera með hagnýtt og aðgengilegt byrjendanámskeið um helstu möguleika gervigreindarinnar ChatGPT. Námskeiðið verður haldið í sal FEB í Stangarhyl 4, mánudaginn 4. maí 2026 kl. 14:00.

Um tveggja tíma námskeið er að ræða þar sem farið verður yfir grunnin í ChatGPT og ýmis atriði sem gætu hjálpað til við að spara tíma í daglegu lífi. Einnig verður farið yfir það hvernig hægt er að nýta  ChatGPT sér til gamans eða í eigin verkefnum.

Helstu viðfangsefni námskeiðsins eru:

  • Hvað er ChatGPT?
  • Hvernig virkar það?
  • Hvernig á að nota það?
  • Hvað ber að varast?

Stefán Atli er viðskiptafræðingur að mennt, sérfræðingur í markaðsmálum og mikill áhugamaður um gervigreind og hefur haldið fjölda námskeiða í gervigreind.

Verð: 2.500 kr. (Ef þátttakandi er utanfélagsmaður er verðið 3.500 kr.)

Vertu óhrædd/ur og taktu þátt, því um mjög áhugavert viðfangsefni er að ræða.

Skráning fer fram á skrifstofu FEB, í gegnum síma 588 2111 (sími er opinn frá kl. 10:00-14:00 alla virka daga) eða með því að senda tölvupóst á netfangið feb@feb.is