Vilt þú kynnast gervigreindinni ChatGPT?

Uppselt er  á byrjendanámskeiðið um gervgreind. Við erum að vinna í því að halda fleiri slík námskeið og munum við setja inn frétt um leið og dagsetningin er orðin klár.

FEB hefur fengið til sín Stefán Atla Rúnarsson, sem er mikill áhugamaður um gervigreind, til að vera með hagnýtt og aðgengilegt byrjendanámskeið um helstu möguleika gervigreindarinnar ChatGPT. Námskeiðið verður haldið í sal FEB í Stangarhyl 4, miðvikudaginn 1. október kl. 10:00.

Um tveggja tíma námskeið er að ræða þar sem farið verður yfir grunnin í ChatGPT og ýmis atriði sem gætu hjálpað til við að spara tíma í daglegu lífi. Einnig verður farið yfir það hvernig hægt er að nýta  ChatGPT sér til gamans eða í eigin verkefnum.

Helstu viðfangsefni námskeiðsins eru:

    • Hvað er ChatGPT?
    • Hvernig virkar það?
    • Hvernig á að nota það?
    • Hvað ber að varast?

Stefán Atli er viðskiptafræðingur að mennt, sérfræðingur í markaðsmálum og mikill áhugamaður um gervigreind og hefur haldið námskeið í gervigreind fyrir hátt í 400 manns frá því í mars á þessu ári.

Verð: 2.500 kr. (Ef þátttakandi er utanfélagsmaður er verðið 3.500 kr.)

Vertu óhrædd/ur og taktu þátt, því um mjög áhugavert viðfangsefni er að ræða.

Skráning fer fram á skrifstofu FEB, í gegnum síma 588 2111 (sími er opinn frá kl. 10:00-14:00 alla virka daga) eða með því að senda tölvupóst á netfangið feb@feb.is