Category Archives: Fréttir

Sofðu vel – án svefnlyfja

FEB tekur þátt í átakinu „Sofðuvel“ sem er vitundarvakning um notkun svefnlyfja hjá eldra fólki. Um er að ræða samstarfsverkefni LEB og verkefnahópsins „Lyf án skaða“. Verkefnastjóri vitundarvakningarinnar er Anna Birna Almarsdóttir, prófessor í lyfjafræði við Kaupmannahafnarháskóla. Öllum félagsmönnum í félögum eldri borgara á landinu er nú boðið að taka þátt í fræðslufundi um svefnlyf…

Vilt þú vera fulltrúi FEB á landsfundi LEB?

Ágæti félagsmaður Þriðjudaginn 29. apríl n.k. boðar Landssamband eldri borgara (LEB) til landsfundar. Fundurinn verður haldinn á Park Inn hótelinu í Reykjanesbæ. Innskráning á fundinn hefst kl. 9:30 en fundurinn sjálfur hefst kl. 10.15. og gert er ráð fyrir að fundarstörfum ljúki kl. 16:45. Sjá nánar um landsfundinn HÉR Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni (FEB) hefur rétt á að senda 51 fulltrúa á landsfundinn og að…

Gleðifréttir

Dansinn hefst að nýju Næstkomandi sunnudag 30. mars, byrjum við aftur með dansleikina hér hjá okkur í FEB, en þeir hefjast stundvíslega kl. 20:00. Sú breyting verður á að dansleikirnir verða haldnir annan hvern sunnudag (en ekki vikulega), þannig að næsti dansleikur eftir 30. mars, verður 13. apríl og þarnæsti 27. apríl o.s.frv. Við bjóðum sérstaklega velkomna alla nýja dansunnendur,…

Ályktun samþykkt á aðalfundi Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni 2025

Ályktun aðalafundar FEB 27. febrúar 2025 Aðalfundur Félags eldri borgara í Reykjavík leggur áherslu á að ríki og sveitarfélög virði mannréttindi eldri borgara í hvívetna. Að persónufrelsi  og sjálfsákvörðunarréttur eldri borgara sé virtur. Að eldri borgarar njóti virðingar, öryggis og sjálfstæðis. Að eldri borgarar hafi valkosti um það hvernig þeir vilja verja ævikvöldinu. Að eldri…

Úrslit kosninga á aðalfundi FEB 2025

Á aðalfundi Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni sem haldinn var í húsakynnum FEB þann 27. febrúar 2025, voru eftirtaldir félagsmenn kosnir í  stjórn og varastjórn, samtals sjö manns. Atkvæði greiddu 82 félagsmenn, þar af voru 3 seðlar ógildir Til tveggja ára í aðalstjórn voru kjörnir: Ástrún Björk Ágústsdóttir með 57 atkvæði Guðrún Bergmann með…