Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni (FEB) leggur áherslu á að allir flokkar, sem bjóða fram lista í sveitarstjórnarkosningunum 16.maí n.k., leggi fram heildstæða stefnu og skýra tímasetta áætlun um aðgerðir í málefnum eldra fólks til skemmri og lengri tíma.
AFSLÁTTUR AF FASTEIGNAGJÖLDUM
FEB hefur gert samanburð á afslætti fasteignagjalda til eldri borgara og öryrkja í 28 sveitarfélögum á Íslandi. Í ljós kom að það er mjög breytilegt hvernig afsláttarkjörum er háttað, og hvort fólk þurfi sjálft að sækja um afsláttinn eða ekki. Í Reykjavík er afslátturinn virkjaður miðlægt og fólk þarf því ekki að sækja um hann. Ef skoðuð eru sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu þá eru tekjuviðmiðin misjöfn eftir sveitarfélögum. FEB leggur áherslu á að Reykjavík fari ekki halloka í þeim samanburði og að allir flokkar sameinist um að Reykjavíkurborg hafi mestan metnað allra sveitarfélaga hvað þetta varðar til að mæta tekjulægstu íbúum borgarinnar.
ÖLDRUNARRÁÐGJÖF – HEIMAÞJÓNUSTA
Það er mikilvægt að eldra fólk sé sem allra best upplýst um réttindi sín og þá þjónustu sem stendur því til boða. FEB leggur áherslu á:
- Að Reykjavík auki frumkvæði sitt að kynna þjónustu borgarinnar gagnvart eldra fólki.
- Að mönnun heimaþjónustu sé ávallt eins og best verður á kosið, t.d. með tilliti til menntunar, reynslu og bakgrunnsskoðunar.
- Að gerðar séu reglubundnar kannanir á gæðum þjónustunnar.
- Að sérstaklega sé fylgst með og tekið á því með viðeigandi hætti ef starfsfólk er uppvíst að ofbeldi gagnvart skjólstæðingum sínum (rannsóknir á Norðurlöndum gefa til kynna að um þriðjung ofbeldisbrota gagnvart eldra fólki megi rekja til heilbrigðisstarfsfólks).
HJÚKRUNARHEIMILI OG DAGDVALIR
Að veita heilbrigðisþjónustu á stöðum þar sem dagdvöl eldra fólks er í boði. Jafnframt verði hún aukin á hjúkrunarheimilum, t.d. með heyrnar-, augn- og tannlæknaþjónustu.
HÚSNÆÐISMÁL
Hugsað verði fyrir því að óhagnaðardrifin byggingafélög fái lóðir til að byggja fyrir eldra fólk. Lögð verði áhersla á að mæta fjölbreyttum húsnæðisþörfum eldra fólks við framtíðarskipulag borgarinnar.
SAMSTARF OG STUÐNINGUR VIÐ FEB
FEB leggur áherslu á öflugt samstarf við Reykjavíkurborg. Slíkt samstarf byggi á virku samráði og gagnkvæmri upplýsingamiðlun. Eftir bestu vitund mun Reykjavíkurborg vera eina sveitarfélagið á landinu sem ekki styður við „sitt“ félag (FEB). Þetta verður að endurskoða.
ÖLDUNGARÁÐ REYKJAVÍKUR
Reykjavíkurborg breytti á árinu 2024 samþykktum um öldungaráð Reykjavíkur á þann veg að fulltrúum FEB var fækkað úr þremur í einn. FEB fer fram á að þessi ákvörðun verði látin ganga til baka og FEB fái að nýju þrjá fulltrúa í öldungaráð, enda sé ákvörðunin í andstöðu við lög um félagsþjónustu sveitarfélaga (nr.40/1991) og málefni aldraðra (nr. 125/1999).

