Aðventuferð til Berlínar EÐA Heidelberg

Vilt þú koma með FEB-ferðum í aðventuferð til Berlínar eða Heidelberg?
FEB-ferðir bjóða upp á eina ferð til Berlínar og aðra til Heidelberg, fyrir næstu jól. Nú fer hver að verða síðastur að bóka sig.

Berlín – aðventuferð (24. til 28. nóv.)
FEB-ferðir í samvinnu við ferðaskrifstofuna Betri Ferðir bjóða enn og aftur upp á hina geysivinsælu aðventuferð til Berlínar í lok nóvember. Um er að ræða fjögurra nátta ferð dagana 24. til 28. nóvember 2025, þar sem gist verður hótel ParkInn sem er mjög vel staðsett á miðju Alexanderplatz. Á þessu torgi má í dag finna allar helstu verslanir í nokkrum verslunarmiðstöðvum, en á torginu er einnig fallegur jólamarkaður. Farin verður skoðunarferð í rútu um borgina þar sem markverðustu staðir borgarinnar verða skoðaðir og gönguferð um elsta hluta Berlínar og endað á einum fallegasta jólamarkaði borgarinnar við Gendermanmarkt. Að lokum verður farin dagsferð í rútu til Potsdam, ógleymanleg upplifun að kynnast Cecilienhof þar sem Evrópu var skipt upp að lokinni seinni heimsstyrjöld. Þrisvar sinnum fer hópurinn saman út að borða á kvöldin, en í einum kvöldverðinum verður borinn fram þýskur jólamatur og hlustað á lifandi músík.
Fararstjóri: Lilja Hilmarsdóttir hjá Betri ferðum
Verð: 210.000 kr. á mann í tvíbýli en 257.000 kr. fyrir einbýli

Innifalið í verði ferðar er: Flug með Icelandair. Gisting á ParkInn 4* hóteli í 4 nætur með morgunverði. Þrír kvöldverðir (tveir kvöldverðir á ParkInn og einn kvöldverður á Hofbrauhaus). Gönguferð í 2 klst um elsta hluta Berlínar. Rútu- og skoðunarferð í 4 klst um helstu hverfi Berlínar. Dagsferð til Potsdam. Akstur til og frá flugvelli svo og íslensk fararstjórn

Heidelberg aðventuferð (1. til 5. des.)
FEB-ferðir í samvinnu við ferðaskrifstofuna Betri Ferðir bjóða einnig upp á áhugaverða aðventuferð til Heidelberg í byrjun desember. Um er að ræða fjögurra nátta ferð dagana 1. til 5. des. 2025, þar sem gist verður á Hotel Hilton  sem er nýuppgert, mjög gott fjögurra stjörnu hótel vel staðsett í miðborginni. Rölt verður um næsta nágrenni hótelsins og síðar í ferðinni verður farin skoðunarferð í rútu um borgina og m.a. stoppað við aðal kennileiti borgarinnar, kastalann og ekið niður í gamla bæinn. Farin verður heilsdagsferð til Rothenburg  ob der Tauber, sem er ein best  varðveitta miðaldaborg Evrópu, gríðarlega falleg með aðeins 15 þúsund íbúa og enn fegurri er hún í jólafötunum. Farnar verða gönguferðir og skoðað það sem Rothenburg hefur upp á að bjóða á aðventunni. Einn dagur er frjáls í Heidelberg en hópurinn fer tvisvar sinnum saman út að borða og verður annar kvöldverðurinn snæddur á þekktri fjörugri stúdentakrá.                                       
Fararstjóri: Lilja Hilmarsdóttir hjá Betri ferðum
Verð: 211.000 kr. á mann í tvíbýli en 263.000 kr. fyrir einbýli

Innifalið í verði ferðar er: Flug með Icelandair. Gisting í 4 nætur á Hotel Hilton 4* með morgunverði. Skoðunarferðir í Heidelberg. Dagsferð til Rothenburg. Tveir kvöldverðir. Akstur til og frá flugvelli svo og íslensk fararstjórn.

Bókanir fara fram í gegnum bókunarsíðuna klik.is eða með því að smella hér fyrir Berlín eða hér fyrir Heidelberg