Aðalfundur Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni (FEB) verður haldinn í Ásgarði, sal FEB Stangarhyl 4, 110 Reykjavík, miðvikudaginn 25. febrúar 2026, kl. 14:00. Dagskrá aðalfundar A) Kosning fundarstjóra og fundarritara. B) Lögð fram skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu ári C) Lagðir fram endurskoðaðir og áritaðir ársreikningar félagsins ásamt fjárhagsáætlun rekstrarársins. D)…
Category Archives: Fréttir
Uppstillingarnefnd hefur lokið störfum Tillaga nefndarinnar er, að á aðalfundi FEB þann 25. febrúar 2026 fari fram kosning til stjórnar um þau sem gefið hafa kost á sér til setu í stjórn. Nefndinni barst eitt framboð til formanns og sjö framboð í stjórn. Frambjóðandi til formanns stjórnar 2026 er: Sigurður Ágúst Sigurðsson Aðrir frambjóðendur til…
Ágætu félagsmenn Við erum heldur betur að koma sterk til baka! Vikulegu dansleikirnir okkar hefjast aftur næsta sunnudag 8. febrúar og lofum við – líkt og alltaf – góðri stemningu og stuði🕺💃 Dustið nú endilega rykið af dansskónum og mætið endurnærð eftir smá hvíld, við munum taka vel á móti ykkur. Hlökkum til að sjá…
Aðalfundur Félags eldri borgara í Reykjavík, FEB, fyrir árið 2026 verður í Ásgarði, sal félagsins í Stangarhyl 4 miðvikudaginn 25. febrúar nk. kl. 14:00. Uppstillingarnefnd félagsins er að störfum skv. 10. gr. laga félagsins. Nefndin óskar eftir uppástungum/tillögum og framboðum áhugasamra félagsmanna í eftirtalin trúnaðarstörf fyrir félagið: I. Formaður félagsins, kosinn til tveggja ára….
Aðalfundur Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni (FEB) verður haldinn í Ásgarði, sal FEB Stangarhyl 4, 110 Reykjavík, miðvikudaginn 25. febrúar 2026, kl. 14:00. Tillögur og erindi sem leggja á fyrir fundinn skulu hafa borist stjórn félagsins skriflega minnst einni viku fyrir aðalfund. Tillögur uppstillingarnefndar um fólk í stjórn munu liggja frammi á skrifstofu félagsins…
Eftir fjölda vel heppnaðra gervigreindarnámskeiða haustið 2025 hefur FEB enn á ný fengið til sín Stefán Atla Rúnarsson til að vera með hagnýtt og aðgengilegt byrjendanámskeið um helstu möguleika gervigreindarinnar ChatGPT. Námskeiðið verður haldið í sal FEB í Stangarhyl 4, miðvikudaginn 14. janúar 2026 kl. 10:00. Um tveggja tíma námskeið er að ræða þar sem farið verður yfir grunnin í ChatGPT…






