Dansleikirnir byrja aftur – næsti dansleikur 8. febrúar

Ágætu félagsmenn

Við erum heldur betur að koma sterk til baka!

Vikulegu dansleikirnir okkar hefjast aftur næsta sunnudag 8. febrúar og lofum við – líkt og alltaf – góðri stemningu og stuði🕺💃

Dustið nú endilega rykið af dansskónum og mætið endurnærð eftir smá hvíld, við munum taka vel á móti ykkur.

Hlökkum til að sjá ykkur sunnudaginn 8. febrúar í Stangarhyl 4 klukkan 20:00

Bestu kveðjur,
starfsfólk FEB, Siggi og Sigrid 🎶