Frá því að Uppstillingarnefnd lauk störfum og þar til framboðsfrestur rann út miðvikudaginn 18. febrúar dró einn frambjóðandi sig til baka til setu í stjórn og einn nýr frambjóðandi bauð sig fram til setu í stjórn.
Frambjóðandi til formanns stjórnar 2026 er:
-
- Sigurður Ágúst Sigurðsson
Aðrir frambjóðendur til stjórnar 2026 eru eftirtaldir í stafrófsröð. Nöfnum er raðað eins og þau munu koma fram á kjörseðli eða í stafrófsröð, þar sem fyrsta nafnið var valið með útdrætti skv. 11.6 gr. laga félagsins.
-
- Sigrún E. Unnsteinsdóttir
- Fanney Sigurbjörg Jóhannsdóttir
- Guðrún Ósk Jakobsdóttir
- Hörður Hilmarsson
- Jóhann Gunnar Ásgrímsson
- Jónas Ragnar Halldórsson
- Kristján Guðmundsson
Kynningu á frambjóðanda til formanns má finna með því að smella HÉR
Kynningar á frambjóðendum til stjórnar má finna með því að smella HÉR
Kynningunum er raðað í sömu röð og kemur fram hér að ofan.
Í lögum FEB grein 5.2 kemur eftirfarandi fram:
„Kjörtímabil stjórnar er tvö ár. Formaður skal kosinn sérstaklega annað hvert ár, en á hverjum aðalfundi skal kjósa þrjá menn til tveggja ára í stjórn. Þrír varamenn skulu kosnir til eins árs….“

