Aðalfundur Félags eldri borgara í Reykjavík, FEB, fyrir árið 2026 verður í Ásgarði, sal félagsins í Stangarhyl 4 miðvikudaginn 25. febrúar nk. kl. 14:00.
Uppstillingarnefnd félagsins er að störfum skv. 10. gr. laga félagsins.
Nefndin óskar eftir uppástungum/tillögum og framboðum áhugasamra félagsmanna í eftirtalin trúnaðarstörf fyrir félagið:
I. Formaður félagsins, kosinn til tveggja ára.
II. Félagsmenn til setu í stjórn félagsins.
Kjörgengi á aðalfundi miðast við þau sem voru á félagaskrá 10. janúar 2026 og hafa greitt félagsgjald.
Tillögur þar um berist í tölvupósti á feb@feb.is í síðasta lagi fyrir lok dags 9. febrúar 2026, þar sem fram þarf að koma nafn, kennitala og sími.
Óskar Magnússon
Sigurbjörg Gísladóttir
Kári Jónasson

