Aðventuferðir FEB-ferða, bókaðu tímanlega!

FEB-ferðir, í samstarfi við ferðaskrifstofuna Betri ferðir, bjóða upp á tvær skemmtilegar aðventuferðir um mánaðarmótin nóv./des.

🎄 München – njóttu einstakrar jólastemningar í borginni.
🎄 Edinborg – upplifðu notalega aðventustemningu í einni fallegustu borg Bretlandseyja.

Skelltu þér með okkur í jólastemninguna!
Það getur borgað sig að bóka sem fyrst, því sætafjöldi er takmarkaður.

Munchen aðventuferð, dagana 24. til 28. nóv. – dagsferð til Salzburg innifalin
Fjögurra nátta aðventuferð til Munchen í lok nóvember sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Höfuðborg Bæjaralands er með glæsilegum byggingum frá tímum voldugra konunga.  Á þessum tíma er borgin í jólafötunum og jólamarkaðir og skreytingar út um alla borg. Gist er á hótel Premier Inn. Í fróðlegri ökuferð verða markverðustu byggingar og kennileiti borgarinnar skoðuð sem og Ólympíuleikvangurinn frá 1972 o.fl.  Farin verður gönguferð þar sem upphaf Hitlers er tekið fyrir, sjáum hvar bjórkjallarinn stóð, kynnumst fyrsta banatilræði við hann o.fl.  Borðað verður á hinu fræga Hofbräu Haus frá 1589.  Einnig verður farin dagsferð til Salzburg á slóðir Mozart og kvikmyndarinnar Sound of Music. Ógleymanleg ferð.
Fararstjóri: Lilja Hilmarsdóttir hjá Betri ferðum.
Verð: 
228.000 á mann í tvíbýli en 283.000 í einbýli.
Bókanir fara fram í gegnum bókunarsíðuna klik.is eða HÉR

Edinborg – aðventuferð, dagana 29. nóv. til 3. des. – hálendisferð innifalin
Fjögurra nátta aðventuferð til Edinborgar um mánaðarmótin nóv. – des. Að mati Karls konungs Bretlands er Edinborg fallegasta borg landsins og er það ekki ofsögum sagt.  Borgin er alls staðar  skreytt dásamlegum jólaljósum og hafa Bretar kappkostað síðari ár að gera vel við borgir sínar á aðventunni og hefur Edinborg ekki farið varhluta af því.  Gist á hótel Premier Inn Waverley sem staðsett er í miðborginni. Boðið upp á ökuferð um borgina og þar sem saga hennar er kynnt og eru það oft átakamiklar lýsingar. Tekin gönguferð um frægustu götu Edinborgar Royal Mile með leiðsögn um hús, menn og málefni. Kastalinn stendur við annan enda götunnar og hin tilkomumikla höll Holyrood Palace við hinn endann. Hópurinn borðar saman á yndislegum stað prýddum jólaljósum og anda liðinnar tiðar. Þá verður farið í hálendisferð m.a. til Trossachs þjóðgarðsins og Loch Lomond, þar sem einstök náttúrufegurð ríkir. Sameiginlegur léttur hádegisverður snæddur, áður en ekið er til hins þekkta Stirling kastala.
Fararstjóri: Lilja Hilmarsdóttir hjá Betri ferðum.
Verð: 238.000 á mann í tvíbýli en 307.000 í einbýli.
Bókanir fara fram í gegnum bókunarsíðuna klik.is eða HÉR