Vilt þú koma í gönguferð með FEB-ferðum?

Skemmtileg nýjung fyrir göngugarpa í FEB – u.þ.b. 12,5 km gönguferð frá Ölkelduhálsi yfir í Grafning. Enn eru nokkur laus pláss – skelltu þér með 😊

Miðvikudaginn 20. ágúst standa FEB-ferðir fyrir skemmtilegri göngu um hina svokölluðu Kattartjarnaleið og er lagt af stað kl. 10:00.  Upphaf og endir ferðarinnar er í Stangarhyl 4, við húsnæði FEB. Rútan skutlar okkur að upphafsstað sem er Ölkelduháls og sækir okkur á áfangastað. Frá Ölkelduhálsi er gengið framhjá fallegu hverasvæði á hálsinum og þaðan norður fyrir Ölkelduhálshnúk og neðan við Tjarnarhnúk og þar er staldrað við á útsýnisstað. Þaðan er gengið meðfram Álftatjörn og síðan tekinn örlítill krókur til að kíkja á Kattartjarnirnar tvær. Þá er komið að hinu stórkostlega Tindgili. Þegar komið er niður úr gilinu er skammt eftir að Ölfusvatnsánni og við fylgjum henni niður að endastað.

Um er að ræða um 12,5 km langa göngu þar sem byrjað er á hæsta punkti með lækkun smám saman alla gönguna. Undirlagið er fjölbreytt en ekki grýtt að ráði. Þetta eru mest eins og breiðir kindastígar sem fylgja landslaginu. Gangan sjálf tekur ca 6 klst með stoppum.

Í boði er hressing á áfangastað áður en lagt er af stað aftur til Reykjavíkur.

Útbúnaður: Góðir gönguskór eða utanvegaskór, góður útivistarfatnaður og göngustafir. Einnig þarf að hafa með nesti og drykki til að nærast meðan á göngunni stendur.
Leiðsögumaður: Einar Skúlason
Erfiðleikastig:  3 skór
Verð: 18.500 kr.

Skráning fer fram á skrifstofu FEB, í gegnum síma 588 2111 (sími er opinn frá kl. 10:00-14:00 alla virka daga) eða með því að senda póst á netfangið feb@feb.is