Skrifstofa Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni lokar vegna sumarleyfa dagana 20. júlí til og með 7. ágúst.
– Fyrsti tíminn eftir frí í leikfiminni „Sterk og liðug“ verður þriðjudaginn 11. ágúst.
– Fyrsti tíminn eftir frí í Zumba Gold 1 (fyrir byrjendur) verður þriðjudaginn 11. ágúst.
– Fyrsti tíminn eftir frí í Zumba Gold 2 (fyrir lengra komna) verður þriðjudaginn 11. ágúst.
– Fyrsta FEB-ferðin eftir sumarfrí er gönguferð um Jökulgil að Grænahrygg og Uppgönguhrygg, sem er á áætlun annan hvorn daginn 14. eða 15. ágúst (ef veður leyfir).
Annað félagsstarf byrjar seinna í haust og koma upplýsingar um það smám saman inn á heimasíðu FEB, ef þær upplýsingar er ekki núþegar þar að finna. Bendum sérstaklega á Viðburðardagatalið í þeim efnum.
Hafið þið það sem allra best og njótið sumarsins.
Bestu kveðjur,
starfsfólk FEB

