Skráning er hafin í haustnámskeið FEB í Íslendingasögum og bókmenntum.
Ætlar þú ekki að vera með?
Fyrsti tíminn í Íslendingasögum er föstudaginn 18. sept.
Um er að ræða fornsagnanámskeið þar sem teknar eru fyrir mismunandi Íslendinga- og/eða fornaldarsögur.
Á haustönn 2026 er Völsunga saga á dagskrá.
Völsunga saga var skráð um eða skömmu eftir 1250 og er að nokkru leyti byggð á hetjukvæðum eddukvæða. Fyrsti hluti sögunnar á sér þó ekki þekktar fyrirmyndir og segir m.a. frá Völsungi, Sigmundi, Signýju og Sinfjötla, afkomendum Óðins. Sagan geymir líka dýrmætar upplýsingar um tiltekin atriði hetjusögunnar þar sem eyða er í Konungsbók eddukvæða.
Leiðbeinandi: Baldur Hafstað.
Uppbygging námskeiðs: Einu sinni í viku á föstudögum í 10 vikur hvert námskeið. Hóparnir verða tveir, sá fyrri kl. 10–12 (einnig í boði í gegnum fjarfundarbúnaðinn ZOOM) og sá seinni kl. 12:30–14:30.
Haustönn 2026 hefst föstudaginn 18. september (síðasti tími annarinnar er á áætlun föstudaginn 20. nóvember)
Verð: 23.000 kr.
Fyrsti tíminn á bókmenntanámskeiðinu er miðvikudaginn 23. sept.
Í bókmenntahópnum er boðið upp á námskeið í ýmsum sögum.
Á haustönn 2026 hittist bókmenntahópurinn fjórum sinnum og ætlar til (endur-) fundar við Laxness. 23. september verður fyrri hluti Sjálfstæðs fólks tekinn fyrir, þann 14. október verður seinni hluti sögunnar tekinn fyrir. 11. nóvember verður farið yfir bókina Í túninu heima og að lokum þann 2. desember verða tvær smásögur eftir Laxness teknar fyrir auk nokkurra ljóða hans.
Leiðbeinandi: Ragnhildur Richter
Uppbygging námskeiðs: Fjögur skipti á miðvikudögum kl. 13:00-15:00 dagana 23. september, 14. október, 11. nóvember og 2. desember.
Verð: 11.000 kr.
Bókanir fara fram á skrifstofu FEB, í gegnum síma 588 2111 (sími er opinn frá kl. 10:00-14:00 alla virka daga) eða með því að senda póst á netfangið feb@feb.is, með nafni og kennitölu viðkomandi þátttakanda.
Nánari upplýsingar um námskeiðin er að finna hér á heimasíðu FEB undir „Félagsstarf“ og þar undir sem „Námskeið og klúbbar“ eða HÉR.

