Grein eftir Sigurð Ágúst Sigurðsson, formann FEB og varaformann LEB sem birtist í Morgunblaðinu 1. okt. 2026 í tilefni alþjóðadags eldra fólks
Árið 1990 ákváðu Sameinuðu þjóðirnar að 1. október ár hvert yrði alþjóðlegur dagur eldra fólks. Þann 1. október 1991 var hann því fyrst haldinn hátíðlegur til að heiðra eldri borgara og halda á lofti þeim málefnum sem snerta þá beint. Á þessum 25 árum hefur eldri borgurum fjölgað mikið og það hefur í för með sér áskoranir.
„Lengra líf skapar áhættu og tækifæri, umbreytir hagkerfum og samfélögum“, segir António Guterres aðalritari og hvetur þjóðir til að takast á við öldrunarþarfir.“
Mannkynið lifir lengur en nokkru sinni fyrr. Árið 2050 er gert ráð fyrir að fjöldi fólks 60 ára og eldri muni hækka úr 1,2 milljörðum í 2,1 milljarð.
Þetta er eitt af stórkostlegum afrekum samtímans, merki um bætta heilsu og sterkari félagslega vernd víða um heim. Það skapar einnig bæði áhættu og tækifæri — umbreytir hagkerfum og samfélögum.
Þess vegna er þema Alþjóðlegs dags eldri borgara í ár:
„Öld langlífis: Endurhugsum kerfi fyrir lengri ævigöngu“.
Þetta er brýnt ákall til að mæta þörfum aldraðra á heimsvísu.
Það að eldast kallar fram óöryggi og áhættu sem þarf að vinna bug á. Einnig kallar það á mismunun sem grefur undan réttindum og velferð. En réttar áherslur frá atvinnu og lífeyri til húsnæðis, heilbrigðisþjónustu og ævilangs náms — geta hjálpað fólki að halda áfram að taka þátt óháð aldri.
Eldri borgarar okkar eru leiðtogar og umönnunaraðilar, sem gegna mikilvægu hlutverki í fjölskyldum, samfélögum og efnahagi þjóða. Á þessum alþjóðlega degi skulum við skuldbinda okkur til kynslóðasamstöðu. Saman getum við hannað stefnu sem tryggir að lengra líf verði einnig gott og lifað við öryggi og með reisn.
Að eldast með reisn er samfélagslegt verkefni
Dagur eldra fólks gefur okkur tilefni til að fagna; reynslu, þekkingu og framlagi þeirra sem byggðu upp samfélagið. En hátíðardagur hefur lítið gildi ef við horfum fram hjá því hvernig fólk hefur það hina 364 daga ársins. Eldri borgarar eiga að geta lifað góðu lífi, með fjárhagslegt öryggi, aðgang að heilbrigðisþjónustu og frelsi til að taka þátt í samfélaginu.
Margt eldra fólk nýtur lífsins, styður fjölskyldu sína, sinnir sjálfboðastarfi og auðgar samfélagið með ótal hætti. Annað þarf að velta fyrir sér hvort þau hafi efni á þjónustu sem heldur þeim heilsuhraustum eða hvort þau geti heimsótt börn og barnabörn sem búa fjarri og jafnvel erlendis. Aldur segir ekki til um fjárhag fólks. Þess vegna verða stjórnvöld að horfa sérstaklega til þeirra sem standa höllum fæti.
Gott líf á efri árum er ekki einkamál hvers og eins. Stjórnvöld móta skilyrðin með ákvörðunum um lífeyri, húsnæði, heilbrigðisþjónustu og gjaldtöku. Þau geta létt fólki lífið, en þau geta líka þrengt að því með mörgum ákvörðunum sem hver um sig virðist smávægileg. Fyrir þann sem hefur lítið milli handanna skiptir hver reikningur máli.
Á þessum hátíðardegi eigum við að þakka eldra fólki fyrir framlag þess. Besta þakklætið felst þó í verkum: sanngjörnum kjörum, aðgengilegri þjónustu og raunverulegu frelsi til að njóta lífsins. Við viljum ekki aðeins fleiri ár í lífið. Við viljum líka meira líf í árin.
Sigurður Ágúst Sigurðsson, varaformaður LEB og formaður FEB

