FEB- ferðir bjóða upp á skemmtilega u.þ.b. 13 km gönguferð frá Ölkelduhálsi yfir í Grafning miðvikudaginn 19. ágúst. Veðurspá næstu daga hefur verið rýnd og veðrið þann 19. ágúst lofar góðu. Enn eru nokkur laus pláss – endilega komdu með, ferðin í fyrra var yndisleg 😊
Upphaf og endir ferðarinnar er í Stangarhyl 4, við húsnæði FEB. Lagt er af stað kl. 9:00 með rútu sem skutlar ferðalöngum að upphafsstað sem er Ölkelduháls og sækir þá á áfangastað. Frá Ölkelduhálsi er gengið framhjá fallegu hverasvæði á hálsinum og þaðan norður fyrir Ölkelduhálshnúk og neðan við Tjarnarhnúk og þar er staldrað við á útsýnisstað. Þaðan er gengið meðfram Álftatjörn og síðan tekinn örlítill krókur til að kíkja á Kattartjarnirnar tvær. Þá er komið að hinu stórkostlega Tindgili. Þegar komið er niður úr gilinu er skammt eftir að Ölfusvatnsánni og við fylgjum henni niður að endastað þar sem í boði verður hressing áður en haldið er af stað heim. Gönguleiðin er fjölbreytt en ekki grýtt að ráði nema í gilinu sjálfu. Þetta eru mest eins og breiðir kindastígar sem fylgja landslaginu. Gangan sjálf tekur ca 6 klst með stoppum.
Útbúnaður: Góðir gönguskór eða utanvegaskór, góður útivistarfatnaður og göngustafir. Einnig þarf að hafa með nesti og drykki til að nærast meðan á göngunni stendur.
Leiðsögumaður: Einar Skúlason
Erfiðleikastig: 3 skór
Verð: 23.000 kr.
Skráning fer fram á skrifstofu FEB, í gegnum síma 588 2111 (sími er opinn frá kl. 10:00-14:00 alla virka daga) eða með því að senda póst á netfangið feb@feb.is

