Skráning er hafin á fræðslufund, námskeið og klúbba FEB fyrir haustönn 2025

Vekjum athygli félagsmanna á því að skráning er hafin á helstu viðburði og námskeið á haustönn hjá FEB.

Miðvikudaginn 27. ágúst kl. 10:00 munu Landsbankinn og FEB bjóða félagsmönnum upp á fræðslufund um netöryggismál. Frítt er inn fyrir félagsmenn en forskráning er nauðsynleg.

Þriðjudaginn 2. september hefst skákin að nýju (ekki krafist forskráningar).
Teflt er alla þriðjudaga allan veturinn frá kl. 13-17

Miðvikudaginn 3. september, byrja Gönguhrólfar aftur að ganga frá Stangarhyl 4, alla miðvikudaga allan veturinn. Um er að ræða u.þ.b. klukkustunda langa göngu en að henni lokinni er komið við í sal FEB, sest niður og spjallað yfir kaffi og rúnstykki. Allir velkomnir (ekki krafist forskráningar).

Föstudaginn 19. september er fyrsti tíminn í Íslendingasögum
Um er að ræða fornsagnanámskeið þar sem teknar eru fyrir mismunandi Íslendinga- og/eða fornaldarsögur.
Á haustönn 2025 er Kormáks saga á dagskrá og líklega verður Hallfreðar saga tekin fyrir síðustu 4 vikur annarinnar.
Leiðbeinandi: Baldur Hafstað
Uppbygging námskeiðs: Einu sinni í viku á föstudögum í 10 vikur. Hóparnir verða tveir, sá fyrri kl. 10–12 (einnig í boði í gegnum fjarfundarbúnaðinn ZOOM) og sá seinni kl. 12:30–14:30.
Verð: 23.000 kr.

Mánudaginn 22. september hefst nýtt myndlistarnámskeið. Um er að ræða almennt grunnnámskeið í myndlist en þessi námskeið hafa notið mikilla vinsælda.
Kennari: Bjarni Daníelsson myndlistarkennari.
Uppbygging námskeiðs: Einu sinni í viku á mánudögum í 3 klst. í senn (frá kl. 13 – 16) í 10 vikur.
Verð: 43.000 kr.

Miðvikudaginn 24. september byrja bókmenntirnar
Boðið er upp á námskeið í ýmsum sögum. Fyrir áramót verða teknar fyrir bækurnar, Með minnið á heilanum eftir Þórhildi Ólafsdóttur, Formaður húsfélagsins eftir Friðgeir Einarsson og DJ Bambi eftir Auði Övu Ólafsdóttur.
Leiðbeinandi: Ragnhildur Richter
Uppbygging námskeiðs: Þrjú skipti á miðvikudögum kl. 13:00-15:00 dagana 24. september, 22. október og 26. nóvember.
Verð: 8.000 kr.

Mánudaginn 13. október hefjast spænskunámskeiðin
Spænskukennsla þar sem farið er yfir framburð og nokkur undirstöðuatriði í málfræði. Aðaláherslan verður á talað mál og orðaforða. Námskeiðunum verður skipt upp í þrjá hópa, eftir erfiðleikastigum.
Leiðbeinandi: Kristinn R. Ólafsson
Uppbygging námskeiðs: tvisvar sinnum í viku í 8 vikur.
Verð: 32.000 kr.

Hreyfitímarnir Zumba Gold og leikfimitímarnir Sterk og liðug eru núþegar byrjaðir og einnig eru dansleikir öll sunnudagskvöld. Kóræfingar Kórs FEB byrja svo væntanlega í lok september.

Allir þessir viðburðir eru haldnir í sal félagsins í Stangarhyl 4 og nánari upplýsingar er að finna hér á heimsíðu FEB undir „Félagsstarf“.

Skráning fer fram á skrifstofu FEB, í gegnum síma 588 2111 (sími er opinn frá kl. 10:00-14:00 alla virka daga) eða með því að senda tölvupóst á netfangið feb@feb.is