Það er ávallt glatt á hjalla í húskynnum FEB síðdegis á miðvikudögum en þá koma kátir félagar kórs FEB saman og syngja undir stjórn Kristínar Jóhannesdóttur. Langar þig ekki að taka þátt?
Fyrsta æfing kórsins í haust verður miðvikudaginn 23. september kl. 16:30. Æft er einu sinni í viku allan veturinn með góðu jólafríi. Það vantar alltaf nýja áhugasama kórfélaga og núna vantar sérstaklega karlmenn í kórinn. Áhugasömum er bent á að vera í sambandi við Gísla Jónatansson, formann kórsins í síma 892 7170 – hann tekur símtalinu fagnandi 😊
Munið: Söngur bætir, kætir og léttir lund!

