Frétt eftir Guðna Einarsson (gudni@mbl.is) sem birtist í Morgunblaðinu 8. september 2022. Í greininni er rætt við Ingibjörgu H. Sverrisdóttur formann FEB. • Tilgreind séreign getur orðið að litlu sé ekki rétt að farið • Huga þarf að skattaþrepi og skerðingum á greiðslum frá TR • Vafamál að það borgi sig að vinna lengur en…
Category Archives: Fréttir
Vegna mikillar eftirspurnar vorum við að bæta við aukaferð til Berlínar á aðventunni. Ferðin verður farin dagana 11. til 15. desember og verður algjörlega með sama sniði og hinar tvær fyrri ferðirnar sem eru uppseldar. Gist verður á Park Inn á Alexanderplatz en á torginu er fallegur jólamarkaður. Boðið verður upp á skoðunarferð um Berlín…
Nú er vetrardagskráin öll að lifna við. Hin geysivinsælu íslendingasögunámskeið byrja að nýju föstudaginn 16. september. Í þetta sinn eru tvær sögur á dagskrá. Fyrstu sex vikurnar verður Færeyinga saga lesin en fjórar síðustu vikurnar verða helgaðar Svínfellinga sögu. Færeyinga saga er örlagasaga þeirra Þrándar í Götu og Sigmundar Brestissonar, en þeim fyrrnefnda hefur verið…
Skrifstofa Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni lokar vegna sumarleyfa dagana 18. júlí til og með 5. ágúst. – FEB dansleikirnir hefjast aftur sunnudaginn 7. ágúst. – Fyrsta FEB-ferðin eftir sumarfrí er Fjallabaksleið nyrðri, Landmannalaugar, sem farin verður 10. ágúst. – Fyrsti tíminn í leikfiminni „Sterk og liðug“ eftir frí verður þriðjudaginn 16. ágúst….
Skráning hafin í ný 8 vikna námskeið sem hefjast 16. ágúst n.k. Ætlar þú ekki að vera með? Um er að ræða geysivinsæl námskeið þar sem leiðbeinandi er – eins og áður – engin önnur en Tanya Svavarsdóttir. Zumba Gold námskeið Dans og leikfimi sem notar svipaða uppbyggingu og Zumba Fitness, en breytir danssporunum og…
Frá september og út maí fer vaskur hópur félagsmanna í gönguferðir frá Stangarhylnum á miðvikudagsmorgnum kl. 10:00. Um er að ræða mismunandi langar gönguferðir, fer eftir veðri og aðstæðum. Að göngu lokinni er komið við í sal FEB, sest niður og spjallað yfir kaffi og rúnstykki. Á sumrin breyta Gönguhrólfar hins vegar til og ganga…






