Langar þig í aðventuferð til Berlínar?

Vegna mikillar eftirspurnar vorum við að bæta við aukaferð til Berlínar á aðventunni. Ferðin verður farin dagana 11. til 15. desember og verður algjörlega með sama sniði og hinar tvær fyrri ferðirnar sem eru uppseldar.

Gist verður á Park Inn á Alexanderplatz en á torginu er fallegur jólamarkaður. Boðið verður upp á skoðunarferð um Berlín á áhugaverða og markverða staði og gönguferð á slóðir Stasi og kalda stríðsins sem og helfararinnar. Farin verður heilsdagsferð til vöggu barokktímans sjálfrar Dresden en þar varð fyrsti jólamarkaðurinn til í Þýskalandi. Snæddur verður kvöldverður á hótelinu fyrsta kvöldið, en auk þess verður farið út að borða á skemmtilegum veitingastað seinna í ferðinni, þar sem á boðstólnum verður ekta þýskur jólamatur með lifandi tónlist.

Fáar borgir eru jafn fallegar í jólafötunum og Berlín. Borgin er skrýdd yndislegu jólaskrauti, ljósum og alls staðar er minnt á komu jólanna. Jólatónleikar eru um alla borg í kirkjum, konserthúsum og Berlínar Philharmoníunni. Elsta jólahefð í heimi, jólamarkaðirnir eru víða með sinn jólavarning, jólavín (Gluhwein) og hunangskökur.

Fararstjóri: Lilja Hilmarsdóttir hjá Betri ferðum
Lengd ferðar: 4 nátta ferð
Dagsetning: 11. til 15. des
Verð: 150.800 kr. á mann í tvíbýli

Innifalið í verði er flug með sköttum, 20 kg taska, akstur til og frá flugvelli, gisting á 4*hóteli í 4 nætur á einum besta stað í Berlín með morgunverði. Skoðunarferð um borgina í 4 klukkustundir, gönguferð um slóðir Stasi og kalda stríðsins sem og helfararinnar. Kvöldverður á hóteli fyrsta kvöldið og jólakvöldverður á skemmtilegum stað með lifandi tónlist. Íslensk fararstjórn.
Ekki innifalið og valkvætt: Heilsdagsferð til Dresden

Skráning er hafin og fer fram á skrifstofu FEB, í gegnum síma 588 2111 eða með því að senda póst á netfangið feb@feb.is.