Author Archives: dyrleifgud

Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?

Grein eftir Þorbjörn Guðmundsson formann kjarnefndar LEB sem birtist í Kjarnanum 11. janúar 2023 Formaður kjaranefndar Landssambands eldri borgara segir að endurmeta þurfi leiðir og baráttuaðferðir til að tryggja velferð og kjör eldri borgara í íslensku samfélagi. Nú er árið 2022 að baki og 2023 hafið með nýjum tækifærum og áskorunum. Nú er rétti tíminn…

Matarklúbbur FEB fyrir karlmenn 60+ sló í gegn fyrir áramót. Nýr hópur byrjar 30. janúar

Langar þig í matarklúbb með öðrum körlum? Langar þig að læra að elda einfaldan íslenska mat? Hefur þú lítið stuðningsnet og/eða ert óvanur að elda? Eða langar þig bara að koma og vera með? Þá er matarklúbbur FEB fyrir karlmenn 60+ eitthvað fyrir þig! Þú þarft ekki að hafa reynslu af matseld til að taka…

Langar þig í söguferð til Færeyja?

Í framhaldi af fornsagnanámskeiðunum haustið 2022 verða farnar tvær fimm daga vorferðir til Færeyja í maí 2023, en í þessar ferðir eru allir áhugasamir velkomnir – ekkert skilyrði að hafa setið námskeiðið. Um er að ræða tvær eins söguferðir með mismunandi dagsetningum þar sem gist verður í fjórar nætur á Hótel Hafnia í miðbæ Þórshafnar….

Ný námskeið að hefjast hjá FEB á nýju ári – viltu ekki vera með?

Gleðilegt nýtt ár kæru félagsmenn, viljum vekja athygli á þeim námskeiðum sem eru að hefjast hjá FEB næstu daga: Þriðjudaginn 10. janúar hefjast ný námskeið í leikfiminni „Sterk og liðug“ og í dansleikfiminni Zumba Gold. Mánudaginn 16. janúar byrja námskeiðin í spænsku að nýju. Föstudaginn 20. janúar hefjast ný námskeið í Íslendingasögum.  Á vorönn 2023…

Opnunartími FEB yfir hátíðarnar

Skrifstofa FEB verður lokuð yfir hátíðarnar frá og með Þorláksmessu 23. desember til sunnudagsins 1. janúar 2023. Opnum aftur mánudaginn 2. janúar kl. 10:00 hress og kát. Starfsmenn og stjórn FEB þakka félagsmönnum einkar ljúf samskipti á árinu sem er að líða og óskar félagsmönnum og fjölskyldum þeirra, gleðilegra jóla, farsældar og friðar á komandi…

Alltaf mikið fjör hjá FEB – nú er það jólastemningin

Hún Tanya nýtir öll tækifæri til brjóta upp hversdagsleikann og hefur einstakt lag á að gera alla Zumba og leikfimitíma ársins skemmtilega. Það var ótrúlegt fjör í jólatímunum í morgun (þriðjudaginn 29. nóv.) – svo mikið að það áttu allir inni að fá sér kökur og kræsingar á eftir. Borðin svignuðu undan góðgæti þátttakenda og…