Það er ávallt glatt á hjalla í húskynnum FEB síðdegis á miðvikudögum en þá koma kátir félagar kórs FEB saman og syngja undir stjórn Kristínar Jóhannesdóttur. Fyrsta æfing kórsins í haust verður miðvikudaginn 27. september kl. 16:30. Æft er einu sinni í viku allan veturinn með góðu jólafríi. Nýir félagar eru velkomnir og er þeim…
Category Archives: Fréttir
Þar sem ferðin „Heilsað upp á Þingeyinga (Demantshringurinn)“ sem fara átti í lok maí – féll niður vegna veðurs, höfum við ákveðið að bjóða aðra samskonar ferð dagana 1.til 2. sept. Flogið er til Akureyrar klukkan 7:10 með Icelandair og þaðan ekið til Húsavíkur þar sem tekin verður skoðunarferð um staðinn. Þá er haldið fyrir…
Skrifstofa Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni lokar vegna sumarleyfa dagana 24. júlí til og með 11. ágúst. – Fyrsti tíminn í leikfiminni „Sterk og liðug“ eftir frí verður þriðjudaginn 15. ágúst. – Fyrsti tíminn í Zumba Gold eftir frí verður þriðjudaginn 15. ágúst. – Fyrsti tíminn í Ballet Fitness verður þriðjudaginn 15. ágúst. – Fyrsta FEB-ferðin eftir sumarfrí er Kerlingafjöll og Hveradali, sem…
Ballet Fitness fyrir 60+ Þann 15. ágúst ætlar FEB að bjóða upp á 8 vikna námskeið í Ballet Fitness sem er nútíma útgáfa af klassískri ballet þjálfun. Ballet Fitness bætir og styrkir stoðkerfið, byggir upp styrk í kviðvöðvum og mjóbaki, þjálfar jafnvægið, tónar vöðvana, bætir líkamsstöðu og mótar líkamann. Æft er með klassískri og nútíma…
Fimmtudaginn 6. júlí bjóða FEB-ferðir upp á mjög áhugaverða ferð um Suðurlandið þar sem hellarnir við Ægissíðu verða skoðaðir og stoppað á Flúðum, Skálholti og við Laugarvatn. Skelltu þér með okkur! Lagt verður af stað úr Stangarhyl kl 8:00. Ekið austur um Þrengslin til Hellu þar sem hellarnir við Ægissíðu verða heimsóttir. Í hellunum má…
Þar sem töluvert hefur dregið úr þátttöku á dansleikina okkar í sumar höfum við ákveðið að FEB dansleikirnir fari í sumarfrí í júlí og fram yfir miðjan ágúst. Þetta þýðir að síðasti FEB dansleikur fyrir sumarfrí verður sunnudaginn 25. júní og fyrsti FEB dansleikur eftir sumarfrí verður sunnudaginn 20. ágúst. Við hvetjum ykkur sem allra…






