Aðalfundur FEB 2024 haldinn 21. febrúar

Aðalfundur Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni (FEB) verður haldinn í Ásgarði, sal FEB Stangarhyl 4, 110 Reykjavík, miðvikudaginn 21. febrúar, kl. 14:00.

  • Tillögur og erindi sem leggja á fyrir fundinn skulu hafa borist stjórn félagsins skriflega minnst einni viku fyrir aðalfund.
  • Tillögur uppstillingarnefndar til formanns og í stjórn munu liggja frammi á skrifstofu félagsins í tvær vikur fyrir aðalfundinn.
  • Tilkynningar einstakra félagsmanna um framboð til formanns og til stjórnarkjörs skulu berast skrifstofu félagsins minnst einni viku fyrir aðalfund.
  • Tillögur um breytingar á lögum félagsins þurfa að berast stjórn félagsins með minnst tveggja vikna fyrirvara.

Stjórn Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni

Uppfærð frétt 13.02.24. kl. 10:00. Breyttur fundarstaður: Aðalfundur FEB 2024 verður haldinn í Gullhömrum (Grafarholti), Þjóðhildarstíg 2,113 Reykjavík, miðvikudaginn 21. febrúar, kl. 14:00.