Þessa dagana er verið að dreifa nýjasta tímariti Félagstíðinda FEB til skilvísra greiðenda félagsgjalda. Margt spennandi efni er tekið fyrir í blaðinu m.a. ferðaáætlun FEB-ferða næstu mánuði, áhugaverð áhugamál eldra fólks, hvað segja flokkarnir nú þegar kosningar eru handan við hornið, húsnæðismál og margt margt fleira áhugavert. Félagstíðindin er einnig hægt að nálgast rafrænt hér…
Author Archives: dyrleifgud
Ágæti félagsmaður Þriðjudaginn 3. maí n.k. hefur Landssamband eldri borgara (LEB) boðað til landsfundar. Fundurinn verður haldinn í Hraunseli, félagsheimili Félags eldri borgara í Hafnarfirði að Flatahrauni 3, 220 Hafnarfirði og hefst kl. 10.00. Gert er ráð fyrir að fundarstörfum ljúki kl. 17.00. Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni (FEB) hefur rétt á að…
Þann 29. apríl verða haldnir sameiginlegir vortónleikar Kórs FEB og Karlakórsins Kátir karlar. Tónleikarnir verða haldnir í Grensáskirkju kl. 17. Stjórnandi Kórs Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni er Bára Grímsdóttir, en stjórnandi Karlakórsins Kátir karlar er Jón Kristinn Cortes. Takið daginn strax frá og komið og njótið ljúfra tóna í faðmi vorsins. Til…
Landssamband eldri borgara (LEB), í samvinnu við aðildarfélög sín, hefur útbúið einblöðung þar sem fram koma áhersluatriði eldra fólks fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Þessi áhersluatriði getur hvert og eitt aðildarfélag heimfært og aðlagað eftir því sem hentar hverju sveitarfélagi, í baráttu sinni við að ná til eyrna frambjóðenda. Áhersluatriðin eru eftirfarandi og þau má nálgast nánar HÉR:…
Á aðalfundi Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni sem haldinn var í Gullhömrum þann 8. mars 2022, var Ingibjörg H. Sverrisdóttir sjálfkjörin formaður FEB. Á fundinum var kosið í stjórn og varastjórn, samtals sex manns. Atkvæði greiddu 150 félagsmenn, þar af var eitt atkvæði ógilt Til tveggja ára í aðalstjórn voru kjörnir: Kári Jónasson…
Framkvæmdastjóri FEB Dýrleif Guðjónsdóttir Reykjavík 7. mars 2022 Í samtali mínu við formann félagsins sem við áttum fyrr í dag kom fram að ég Þorkell Sigurlaugsson hef ákveðið að draga framboð mitt til formanns FEB 2022 til baka. Á þessum fundi ræddum við jafnframt að vinna saman að hagsmunamálum félagsins, m.a. ræddum við hugmyndir mínar…






