Vilt þú vera fulltrúi FEB á landsfundi LEB?

Ágæti félagsmaður

Þriðjudaginn 3. maí n.k. hefur Landssamband eldri borgara (LEB) boðað til landsfundar. Fundurinn verður haldinn í Hraunseli, félagsheimili Félags eldri borgara í Hafnarfirði að Flatahrauni 3, 220 Hafnarfirði og hefst kl. 10.00. Gert er ráð fyrir að fundarstörfum ljúki kl. 17.00. Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni (FEB) hefur rétt á að senda 45 fulltrúa á þennan landsfund og að auki þurfa að vera til taks varamenn.

Áhugasamir félagsmenn FEB eru hvattir til þátttöku.
Vinsamlegast vertu í sambandi við skrifstofu FEB fyrir 18. apríl, með því að hringja í síma 588 2111, senda tölvupóst á feb@feb.is eða mæta á skrifstofuna, ef þú hefur áhuga. Eingöngu fulltrúar félaganna með gilt kjörbréf útgefnum af stjórnum sinna félaga, hafa rétt á setu á landsfundi LEB.

Við hlökkum til að heyra frá þér.