Seinkun nýrra félagsskírteina

Vakin er athygli á seinkun á útgáfu nýrra félagsskírteina og afhendingu nýrrar Afsláttarbókar þar til í maí 2021. Aðalfundur ákvarðar félagsgjöld hvers árs en fundinum var því miður seinkað fram í apríl þetta árið vegna Covid ástandsins. Ný félagsskírteini og Afsláttarbók berast skilvísum greiðendum félagsgjalda. Við trúum því að þjónustuaðilar og verslanir muni sjá í gegnum fingur sér á þessum fordæmalausu tímum, þegar félagsskírteinum síðasta árs er framvísað.