Category Archives: Fréttir

Gjafabréf FEB – tilvalið um þessar mundir

Ekki gefa eitthvað, gefðu frekar Gjafabréf FEB. Það er hugurinn sem skiptir máli. Með Gjafabréfi FEB er ekkert mál fyrir viðtakandann að velja rétt. Gjafabréf FEB er tilvalin gjöf og viðtakandinn fær alltaf eitthvað við sitt hæfi hjá FEB – Námskeið, ferð innanlands sem í ferðirnar erlendis. Þægilegt er að panta gjafabréf með pósti á…

Aðventugleði FEB fimmtudaginn 6. des. í Stangarhyl

Minnum á Aðventugleðina 6. desember kl. 15.30 þar sem boðið verður upp á óáfengt jólaglögg, kaffi og góðgæti. Söngur, Margrét Helga Kristjánsdóttir syngur nokkur lög, Kór FEB syngur undir stjórn Gylfa Gunnarssonar, hugvekja sr. Bjarni Karlsson, upplestur úr bókum og fleira til skemmtunar. Gleðin hefst kl. 15.30. Aðgangseyrir aðeins kr. 700.

Hverju lofuðu þau? spyr formaður FEB, Ellert B. Schram

Hverju lofuðu þau í aðdraganda síðustu kosninga? Nýjustu fréttir frá fjármálaráðherra eru þær að ríkisstjórnin haldi sér í 3.4% hækkun á ellilífeyri frá almannatryggingum þegar fjárlagafrumvarpið verður afgreitt. Þetta telur hann nægilegt. Það mun vera ca 10 þús. króna hækkun á mánuði, ef þetta verður niðurstaðan í afgreiðslu fjárlagafrumvarps í næsta mánuði.