Aldrei fjölmennari Sviðaveisla en í dag. Fullt hús góðs matar frá Múlakaffi. Skemmtileg skemmtiatriði takk fyrir; Kristján Björn Snorrason, Gleðisveitin PLÚS, Karl Karlsson, hjónin fyrir sönginn. Fyrirtæki sem lögðu okkur til happdrættisvinninga.
Category Archives: Fréttir
Enn ein nýjungin hjá FEB. Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja efla færni sína í almennri tölvunotkun og/eða spjaldtölvunotkun þegar Veraldarvefurinn (Internetið) og helstu netsamskiptamiðlar eru annars vegar. Leiðbeint verður um notkun algengustu leitarvéla sem og notkun vinsælla samskipta- og afþreyingarmiðla t.d. Facebook.
Fullbókað er í Sviðaveisluna í hádeginu n.k. laugardag 3. nóv.
Nýtt 8 vikna námskeið hefst mánudaginn 29. október kl. 11.30 – 12.15 á mánu- og fimmtudögum – verð kr. 15.900. Nú er um að gera að byrja á því sem lengi hefur staðið til. Leiðbeinandi sem fyrr Tanya Dimitrova. Skráning á feb@feb.is / síma 5882111
HÉR má sjá nýjasta þáttinn af Lífið er lag sem sýndur var á Hringbraut s.l. þriðjudag eins og alla þriðjudaga kl. 20.30.
Þegar ég var í Melaskólanum, tíu eða ellefu ára gamall, var ég rekinn úr kennslustofunni og settur í skammarkrók fyrir að hrekkja skólabróðir. Sem ég hafði ekki gert. Mér þótti þetta leiðinleg og ósanngjörn refsing, sem ég man ennþá eftir. Því er ekki að neita að ég upplifi þessa tilfinningu um þessar mundir, þegar ég…
