Category Archives: Fréttir

Bókmennta hópur Jónínu 27 febrúar 2020

Bókmenntaklúbburinn hittist næst fimmtudaginn 27. feb., kl. 13:00 – 15:00. Í þessum tíma verður rædd bókin Meðan nóttin líður  eftir Fríðu Á Sigurðardóttur. Fjallað er um líf og sögu fimm kynslóða með afar skemmtilegri, sumum finnst flókinni, frásagnaraðferð. Þetta er bók sem gaman er að ræða. Umræðum stýrir Jónína Guðmundsdóttir.

Nýtt námskeið

Zumba Gold  – dans, leikfimi og teygjur fyrir byrjendur – nýr viðbótar hópur. Nýtt 4-vikna námskeið hefst mánudaginn 10. febrúar og verður til og með 5. mars. Tímar tvisvar í viku kl. 9.20 til 10.20 á mánu- og fimmtudögum, kennari Tanya, verð 9.000 kr. Skráning á feb@feb.is eða í síma 5882111. Stangarhyl 4

Aðalfundur Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni verður haldinn fimmtudaginn 12. mars 2020, kl. 14:00 í Ásgarði, Stangarhyl 4, Reykjavík.

Dagskrá fundarins verður samkvæmt lögum félagsins sem hér segir: 1. Kosning fundarstjóra og fundarritara 2. Lögð fram skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu ári 3. Lagðir fram ársreikningar félagsins 4. Umræður um skýrslu stjórnar og ársreikning 5. Lagabreytingar 6. Kosning formanns, aðal- og varamanna í stjórn og skoðunarmanna ársreikninga 7. Afgreiðsla tillagna og erinda…