Category Archives: Fréttir

Mál Gráa hersins gegn íslenska ríkinu þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur 

27.04.2020 Þrír félagar úr Gráa hernum, baráttuhópi eldra fólks um lífeyrismál, hafa að beiðni og fyrir hönd samtakanna  höfðað mál á hendur Tryggingastofnun f.h. íslenska ríkisins vegna skerðinga stofnunarinnar á ellilífeyri og heimilisuppbót á móti greiðslum frá lífeyrissjóðum. Málshöfðunin er reist á því sjónarmiði að með skerðingu opinberra lífeyrisgreiðslna  í hlutfalli við réttindi, sem ellilífeyristakar…

Hlökkum til sumarsins. FEB ferðir – þessar einu sönnu

Ferðir á vegum Félags eldri borgara sumarið 2020 – (Sjá nánari lýsingar undir „Ferðalög“ hér að ofan) Söguferð: Dalir – Snæfellsnes, á áætlun 19. og 26. maí Um er að ræða dagsferðir á söguslóðir Laxdælu í tengslum við Íslendingasagnanámskeiðið. Fararstjórar Baldur Hafstað og Magnús Sædal. Á slóðir Agnesar og Friðriks í Húnaþingi. 14.-15.júní Tveggja daga…

Góðar fréttir frá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar

Kæri félagsmaður Okkur var að berast eftirfarandi auglýsing frá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar: Eldri borgarar í Reykjavík athugið.  Hægt er að sækja um að fá fulleldaðan heimsendan mat hjá velferðarsviði. Máltíðirnar eru keyrðar heim að dyrum.  Sótt er um í síma 411 9450 eða á netfanginu; maturinnheim@reykjavik.is. Umsóknir þurfa að berast kl. 14:00 daginn áður. Við fögnum þessu vel og…