Frétt af baksíðu Morgunblaðsins fimmtudaginn 6. janúar 2022

Frétt eftir Steinþór Guðbjartsson (steinthor@mbl.is), sem okkur er ljúft að endurbirta

Opnar nýjan glugga að Íslendingasögum.
Baldur Hafstað með fornsagnanámskeið hjá FEB.

Baldur Hafstað, fyrrverandi prófessor í íslensku við Kennaraháskóla Íslands, hefur séð um tíu vikna fornsagnanámskeið fyrir og eftir jól hjá Félagi eldri borgara í Reykjavík og nágrenni undanfarin sjö ár. Nú fyrir jólin fór hann yfir valin brot úr Sturlungu, tengd Skagafirði, og 14. janúar hefst námskeið um Grettis sögu. Síðan er stefnt að vettvangsferð norður í vor, en hefð er fyrir því að heimsækja söguslóðir að loknum námskeiðum hvers vetrar. „Við erum alltaf með nýjar gamlar sögur enda úr nógu að velja. Oft eru þetta sögur sem fáir þekkja, og þessi fjölbreytileiki kemur fólki stundum á óvart,“ segir Baldur.

Tryggvi Sigurbjarnarson verkfræðingur ruddi brautina og bað Baldur svo að taka við keflinu. „Ég kom að góðu búi Tryggva og síðan hefur þátttakendum fjölgað.“ Ákveðinn kjarni mæti alltaf en ný andlit birtist í hvert sinn og nú séu á annað hundrað manns í hópnum. „Stundum hvíla menn sig og koma svo aftur á næsta eða þarnæsta misseri.“

Fróðleikur og þekking
Þátttakendur hafa sjálfir margt til málanna að leggja. „Gríðarlegur fróðleikur og þekking á tilteknum sviðum býr í svona hópi,“ segir Baldur. Sumir séu til dæmis vel að sér í kristnum fræðum, aðrir í goðafræði, siglingatækni, lögfræði og svo framvegis. Og læknar geti lumað á skýringum á sjúkdómum, sem fjallað sé um í sögunum. Sérsviðin séu mörg í fjölbreyttum hópi og því skapist oft fjörugar umræður. „Svo er líka skipst á skoðunum í kaffitímanum og þá getur hitnað í kolunum.“

Bárðar saga Snæfellsáss og Þórðar saga hreðu eru dæmi um sögur sem Baldur hefur farið yfir. „Þetta eru bráðskemmtilegar sögur, eða eins og einhver sagði „skemmtilegustu sögur sem ég hef lesið“. Það er vel þess virði að lesa fleiri sögur en Njálu, Egils sögu og Laxdælu.“ Fornaldarsögurnar Ragnars saga loðbrókar og Hrólfs saga kraka, sem Baldur tók fyrir á nýliðnum tveimur árum, hafi til dæmis vakið mikla athygli. „Sömu minnin eru svo mikið í fornaldarsögum Norðurlanda og Íslendingasögum og þegar fólk sér þennan skyldleika opnast nýr gluggi að Íslendingasögunum.“

Síðan Baldur hætti að kenna í Kennaraháskólanum hefur hann verið í hálfu starfi við að semja námsefni í íslensku fyrir Skólavefinn auk þess að leiðbeina eldri borgurum undanfarin ár. „Ég ráðlegg öllum að hætta ævistarfinu snemma til þess að geta farið í annað, því tilbreytingin er dýrmæt.“

Boðið er upp á tvo hóptíma á föstudögum og undanfarin tvö ár hefur morguntíminn jafnframt verið í fjarfundaformi. Baldur segir að í mörgum hafi lengi blundað að rifja upp rykfallnar frásagnir skólabókanna og nú séu menn tilbúnir að taka upp þráðinn og fara yfir sem flestar sögur. „Allir koma með opnum huga; hjá okkur í Stangarhylnum er námsleiði óþekkt hugtak enda engin skyldumæting og engin próf.“