Vorum að opna fyrir bókanir á ferð til Lissabon dagana 7. til 11. október og við eigum enn nokkur sæti laus til Varsjá dagana 21. til 24. júní. Lissabon (7. til 11. október) FEB-ferðir í samvinnu við Betri ferðir bjóða upp á fjögurra nátta haustferð til Lissabon, en hún er ein fallegasta borg Evrópu og…
Category Archives: Fréttir
Kór Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni (FEB) og Karlakórinn Kátir karlar halda sameiginlega tónleika í Bústaðakirkju fimmtudaginn 25. apríl 2024 (sumardaginn fyrsta) kl. 17.00. Stjórnandi Kórs FEB er Kristín Jóhannesdóttir og stjórnandi Karlakórsins Kátir karlar er Jón Kristinn Cortez. Píanóleikari er Sigurður Helgi Oddsson. Miðaverð kr. 3,500,- (posi á staðnum).
Ágæti félagsmaður Nú fer skilvísum greiðendum félagsgjalda FEB – sem ekki hafa afþakkað sendingu á pappír – að berast póstur sem inniheldur þrennt: Félagstíðindi FEB 2024 Félagsskírteini FEB sem gildir til 31. mars 2025 Afsláttarbók 2024 Þetta er allt sent saman í stóru umslagi, vinsamlegast skoðaðu innihald umslagsins vel áður en því er fargað, þar sem félagsskírteinið er svo lítið…
Eitt sinn þótti sjálfsagt að þeir, sem fyrir aldurs sakir, ljúka löngu ævistarfi, ættu að setjast í helgan stein og láta aðra, sér yngri, skammta sér áhrif og lífsgæði. Þetta var almennt viðhorf árið 1986, þegar Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni (FEB) var stofnað. En nú dettur engum slík firra í hug. Svo…
Mánudaginn 26. febrúar hefjast ný 6 vikna spænskunámskeið fyrir byrjendur og lengra komna. Eins og áður verður það hinn eini og sanni Kristinn R. Ólafsson sem kennir. Hann mun taka fyrir framburð og nokkur undirstöðuatriði í málfræði en með aðaláherslu á talað mál og orðaforða. Námskeiðunum verður skipt upp í þrjá hópa: – Spænska 1 Ætluð byrjendum – (mánud. og miðvikud….
Sigurður Ágúst Sigurðsson var kosinn nýr formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni í dag 21. febrúar. Fjórir voru í framboði til formanns og eru úrslitin eftirfarandi: Sigurður Ágúst Sigurðsson hlaut 215 atkvæði Sigurbjörg Gísladóttir hlaut 130 atkvæði Borgþór Kjærnested hlaut 6 atkvæði Sverrir Örn Kaaber hlaut 3 atkvæði Ógildir 2 atkvæði Samtals kusu…





