Samþykkt var í Borgarráði Reykjavíkurborg í dag, fimmtudag 26. apríl að veita FEB vilyrði fyrir lóð fyrir byggingu á allt að 50 íbúðum við Háteigsveg. Félagið þakkar góð og snör viðbrögð borgarráðsmanna og starfsmanna skrifstofu eigna og atvinnuþróunar hjá Reykjavíkurborg við ósk félagsins og afgreiðslu umsóknar.
Category Archives: Fréttir
Kór Félags eldri borgara í Reykjavík og Karlakórinn Kátir karlar halda tónleika í Grensáskirkju föstudaginn 27. apríl kl. 17.00. Stjórnandi kóranna er Gylfi Gunnarsson Undirleikari: Jónas Þórir – Einsöngvarar: Þorgeir Andrésson og Svanhildur Sveinbjörnsdóttir Saxafónleikari: Reynir Þ. Þórisson Fjölbreytt efnisskrá – Miðaverð kr. 2.000.
Þáttur númer fjögur af Lífið er lag – hagsmunir eldri borgara er á Hringbraut í kvöld 24. apríl kl. 20.30. Fyrri þættir eru aðgengilegir HÉR
Nýr SsangYong á ævintýralegu tilboði! Ágæti félagsmaður í Félagi eldri borgara Sumarið er skemmtilegasti tími ársins og fátt sem jafnast á við ferðalag um landið okkar bláa. Í ljósi þess langar okkur hjá Bílabúð Benna til þess að gefa þér kost á að njóta þess til fulls í fjórhjóladrifnum sportjeppa frá SsangYong.
Vetrarstarfi bókmenntahópsins, sem Jónína Guðmundsdóttir hefur stýrt, lýkur núna næst komandi fimmtudag. Þá kemur höfundur bókanna, Vilborg Davíðsdóttir, í heimsókn, segir frá þríleik sínum um Auði djúpúðgu og sýnir myndir frá sögustöðum. Allir velkomnir í Stangarhyl 4, fimmtudaginn 26. apríl, kl 14.00.
