„Ein sjö framboð lýstu yfir miklum áhuga á því að starfa með félaginu að uppbyggingu gagnvart eldri borgurum,“ sagði Gísli, og að framboðin sjö hefðu verið Samfylkingin og Vinstri græn, Miðflokkurinn, Þjóðfylkingin, Alþýðufylkingin, Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn.
Category Archives: Fréttir
„Þetta var upplýsandi fundur og tilgangur hans var að fá frambjóðendur til að kynna mál og málefni fyrir eldri borgara,“ segir Gísli Jafetsson, framkvæmdastjóri Félags eldri borgara í Reykjavík, en félagið stóð í morgun fyrir fundi með forystumönnum framboðanna í Reykjavík ásamt Gráa hernum og Samtökum aldraðra .
Brottför úr Stangarhyl 4 fyrir þá sem ætla með rútu er kl. 4.15 að morgni 9. maí. Glæsileg ferð til Pétursborgar með viðkomu og skoðun á Helsinki. Sama verð ár eftir ár.
Þáttur númer fimm af Lífið er lag – hagsmunir eldri borgara á Hringbraut 1. maí kl. 20.30. Efni þáttarins tekur nokkuð mið af Baráttudegi verkalýðsins. Þessi þáttur og fyrri þættir eru aðgengilegir HÉR
Opinn fundur með stjórnmálaflokkunum – FEB – Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni, Grái herinn og Samtök aldraðra boða til opins fundar með stjórnmálaflokkum. Fundarstaður; Ráðhúsið, Tjarnarsalur. Tilefni fundarins er kosningar til sveitarstjórna þann 26. maí n.k.. Fundarefni tekur að sjálfsögðu mið af því, þar sem fjallað yrði um stöðu, þjónustu og kjör eldri…
Vegna mikils áhuga auglýsum við enn eitt Zumba Gold námskeið undir stjórn Tanyu. Hefst n.k. mánudag kl. 10.30 í Stangarhylnum. Liðkum okkur inn í sumarið……..
