Author Archives: johanna

Glæsileg dansjólasýning og hátíðleg Aðventugleði

Glæsilegur fimmtudagur í Stangarhylnum. Fullt allan daginn. ZUMBA og leikfimihópar með sýningu og jólakaffihlaðborð og siðdegis var Aðventuhátíð þar sem fullt var út dyrum. HÉR má sjá myndir frá deginum m.a. af forsíðu Fréttablaðins í dag 7. des. 2018. Takk öll fyrir komuna, listamenn, rithöfundar, söngvarar, prestur og Tanya Dimitrova fyrir þinn þátt.

Aðventugleðin í dag fimmtudag 6. des. kl. 15.30

Minnum á Aðventugleðina kl. 15.30 þar sem boðið verður upp á óáfengt jólaglögg, kaffi og góðgæti. Söngur, Margrét Helga Kristjánsdóttir syngur nokkur lög, Kór FEB syngur undir stjórn Gylfa Gunnarssonar, hugvekja sr. Bjarni Karlsson, upplestur úr bókum og fleira til skemmtunar. Gleðin hefst kl. 15.30. Aðgangseyrir aðeins kr. 700.

Desemberuppbót og ekki uppbót

Mikið er spurt um DESMEBERUPPBÓT lífeyrisgreiðslna – hjá TR er þessar upplýsingar að finna; Desemberuppbætur greiddar út í byrjun desember Ellilífeyrisþegar fengu greidda desemberuppbót þann 1. desember sem er 54.182 kr. miðað við full réttindi. Ellilífeyrisþegar sem hafa fengið greiðslur hluta úr árinu fá greiddar uppbætur í hlutfalli við réttindi. Desemberuppbótin er tekjutengd.