Category Archives: Uncategorized @is

Eldra fólk vill hafa áhrif á eigið líf

Áskorun hefur verið send á alla stjórnmálaflokka að tryggja eldri borgurum sæti á lista sem gæti tryggt þeim þingsæti. Enda er það á Alþingi sem kjör og velferð eldri borgara eru ráðin. Að áskoruninni stendur formaður LEB ásamt formönnum nokkurra stærstu félaga eldri borgara innan vébanda LEB. Þá hafa öll aðildarfélög LEB verið hvött til…

Íslendingasögur – nýtt námskeið hefst 15. janúar 2021 – skráning er hafin.

Nýtt fornsagnanámskeið hefst föstudaginn 15. janúar næstkomandi og  mun standa í 10 vikur eða fram til 19. mars 2021. Stefnt er að því að kenna í tveimur hópum, fyrir og eftir hádegi, nánar tiltekið kl. 10–12 og 12:30–14:30 alla föstudaga. Að þessu sinni verða teknar fyrir tvær Íslendingasögur: Bárðar saga Snæfellsáss og Þórðar saga hreðu. …

FEB og kjaramál eldri borgara

Á árum áður starfaði sérstök kjaranefnd á vegum FEB, en nokkur undanfarin ár hefur félagið ekki haldið úti eigin nefnd heldur hefur verið starfandi sameiginleg kjaranefnd FEB og LEB. Það fyrirkomulag hefur ekki þótt reynast allskostar vel, og ákvað ný stjórn FEB því að setja á stofn að nýju fimm manna kjaranefnd á vegum félagsins….

Svar við hertum COVID reglum

Vegna hertra aðgerða stjórnvalda og til að svara kalli heilbrigðisráðherra sem hefur hvatt til þess að fólk takmarki samskipti og hitti eins fáa og það getur, hefur verið ákveðið að loka skrifstofu FEB næstu tvær vikur. Að sjálfsögðu verður haldið áfram að þjónusta félagsmenn í gegnum síma 588 2111 frá kl. 10 til 14 á…