Sviðaveisla FEB – Örn Árnason veislustjóri

Nú ætlum við að bregða út af vananum og hafa hina árlegu sviðaveislu FEB síðdegis á föstudegi, þann 6. nóv. frá kl. 18:00 – 20:00. En staðsetning verður sú sama og áður eða í sal félagsins í Stangarhyl 4. Boðið verður upp á sviðakjamma, sviðasultu, saltkjöt og tilheyrandi meðlæti og ekki síst skemmtun. Hægt verður að kaupa léttvín, bjór og gos á staðnum.

Húsið opnar kl. 17:30 en borðhald hefst kl. 18:00.

Það er enginn annar en leikarinn og skemmtikrafturinn Örn Árnason sem mun stýra fjörinu, eins og svo oft áður. Örn þekkjum við öll vel og vitum að hann kann svo sannarlega að halda uppi stemningunni.
Það er því von á skemmtilegu kvöldi þar sem góður matur, góðir drykkir og hláturinn fá að njóta sín!

Við erum sérstaklega ánægð með að hafa náð hagstæðum samningum sem gera okkur kleift að bjóða sviðaveisluna á sama verði og í fyrra eða á kr. 8.500 á mann.

Viðburður: Sviðaveisla FEB
Hvar: Ásgarður, salur FEB í Stangarhyl 4
Hvenær: Föstudaginn 6. nóv. milli kl. 18:00 – 20:00
Veislustjóri/skemmtun: Örn Árnason
Aðgangseyrir:  8.500 kr.

Bókanir fara fram í gegnum bókunarsíðuna klik.is eða með því að ýta HÉR . Lokað verður fyrir bókanir að kvöldi 2. nóv. 2026.

Taktu kvöldið frá, nældu þér í sæti og taktu þátt í sviðaveislu FEB þar sem í boði er góður matur, skemmtun og hlátur.