Ef þú ert ekki félagsmaður í FEB – Félagi eldri borgara í Reykjavík og nágrenni þá getur þú bætt úr því með því að smella HÉR
Category Archives: Fréttir
FEB hefur átt samvinnu við fulltrúa borgarinnar um lækkun fasteigna- og fráveitugjalda til eldri borgara. Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir næsta ár hefur nú verið samþykkt með ákveðnum lækkunum. Fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði í Reykjavík, lækkar úr 0.2% af fasteignamati í 0.18%, eða um 10%. Þá voru samþykktir auknir afslættir af fasteignagjöldum og fráveitugjöldum til eldri borgara og…
Glæsilegri og fjölmennri Aðventugleði lauk nú um kl. 17.30. Takk allir fyrir komuna. Listamenn kórinn, stjórnandi og einsöngvari, höfundar fyrir upplesturinn og eftirherman fyrir sinn þátt Takk öllsömul.
Minnum á Aðventugleðina 6. desember þar sem boðið verður upp á óáfengt jólaglögg, kaffi og góðgæti. Söngur; Hrafnhildur Árnadóttir syngur nokkur lög, Kór FEB syngur undir stjórn Gylfa Gunnarssonar, hugvekja sr. Davíð Þór Jónsson, upplestur úr jólabók og fleira til skemmtunar. Gleðin hefst kl. 15.30. Aðgangseyrir aðeins kr. 700.
