Zumba Gold og Sterk og liðug

Skráning hafin í ný 8 vikna námskeið sem hefjast 16. ágúst n.k.
Ætlar þú ekki að vera með?
Um er að ræða geysivinsæl námskeið þar sem leiðbeinandi er – eins og áður – engin önnur en Tanya Svavarsdóttir.

Zumba Gold námskeið
Dans og leikfimi sem notar svipaða uppbyggingu og Zumba Fitness, en breytir danssporunum og lækkar hraðann, sem hentar betur dönsurum sem eru 60 ára og eldri.
Tímasetning: Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 9:30 – 10:30
Verð: 18.900

Sterk og liðug – leikfimi
Námskeið sem ætlað er dömum og herrum eldri en 60 ára, sem geta ekki lengur stundað hefðbundna líkamsrækt. Allir tímarnir eru sérsniðnir að þörfum þátttakenda.
Tímasetning: Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 10:30-11:15
Verð: 17.900

Skráning fer fram á skrifstofu FEB, í gegnum síma 588 2111 eða með því að senda póst á netfangið feb@feb.is.