Ágæti félagsmaður
Þriðjudaginn 29. apríl n.k. boðar Landssamband eldri borgara (LEB) til landsfundar. Fundurinn verður haldinn á Park Inn hótelinu í Reykjanesbæ. Innskráning á fundinn hefst kl. 9:30 en fundurinn sjálfur hefst kl. 10.15. og gert er ráð fyrir að fundarstörfum ljúki kl. 16:45. Sjá nánar um landsfundinn HÉR
Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni (FEB) hefur rétt á að senda 51 fulltrúa á landsfundinn og að auki þurfa að vera til taks varamenn. Áhugasamir félagsmenn FEB eru hvattir til þátttöku. Vinsamlegast vertu í sambandi við skrifstofu FEB fyrir 8. apríl, með því að hringja í síma 588 2111, senda tölvupóst á feb@feb.is eða mæta á skrifstofuna, ef þú hefur áhuga. Nauðsynlegt er að gefa upp nafn, kennitölu, netfang og símanúmer. Eingöngu fulltrúar félaganna með gilt kjörbréf útgefnum af stjórnum sinna félaga, hafa rétt á setu á landsfundi LEB.
Við hlökkum til að heyra frá þér.