Úrslit kosninga á aðalfundi FEB 2025

Á aðalfundi Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni sem haldinn var í húsakynnum FEB þann 27. febrúar 2025, voru eftirtaldir félagsmenn kosnir í  stjórn og varastjórn, samtals sjö manns.

Atkvæði greiddu 82 félagsmenn, þar af voru 3 seðlar ógildir

Til tveggja ára í aðalstjórn voru kjörnir:

    • Ástrún Björk Ágústsdóttir með 57 atkvæði
    • Guðrún Bergmann með 51 atkvæði
    • Gunnlaugur Auðunn Júlíusson með 50 atkvæði

Til eins árs í aðastjórn var kjörinn:

    • Kristján Guðmundsson með 46 atkvæði

Þrír voru kosnir í varastjórn til eins árs en þeir eru:

    • Sigrún E. Unnsteinsdóttir með 45 atkvæði
    • Bjarni Bjarnason með 41 atkvæði
    • Fanney Sigurbjörg Jóhannsdóttir með 41 atkvæði

Fyrir í stjórn sitja:

    • Sigurður Á. Sigurðsson, formaður
    • Guðrún Ósk Jakobsdóttir
    • Kristinn Eiríksson

Er þeim öllum óskað velfarnaðar í starfi.