Skrifstofa Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni lokar vegna sumarleyfa dagana 21. júlí til og með 8. ágúst.
– Fyrsti tíminn í leikfiminni „Sterk og liðug“ eftir frí verður þriðjudaginn 12. ágúst.
– Fyrsti tíminn í Zumba Gold eftir frí verður þriðjudaginn 12. ágúst.
– Fyrsta FEB-ferðin eftir sumarfrí er ferð í Kerlingarfjöll og Hveravelli, sem farin verður dagana 15. til 16. ágúst.
– FEB dansleikirnir hefjast aftur sunnudaginn 17. ágúst. (ATH síðasti dansleikur fyrir sumarfrí er sunnudaginn 20. júlí)
Upplýsingar um annað félagsstarf sem byrjar aðeins seinna í haust er að finna hér á heimasíðu FEB. Bendum sérstaklega á Viðburðardagatali.
Athugið skráning er hafin í flest námskeið sem haldin verða nú á haustönn.
Hafið þið það sem allra best og njótið sumarsins.
Bestu kveðjur,
starfsfólk FEB

