Spænskunámskeiðin byrja aftur strax eftir páska

Miðvikudaginn 12. apríl hefjast ný 5. vikna spænskunámskeið fyrir byrjendur og lengra komna. Eins og áður verður það hinn eini og sanni Kristinn R. Ólafsson sem kennir.
Hann mun taka fyrir framburð og nokkur undirstöðuatriði í málfræði en með aðaláherslu á talað mál og orðaforða.

Námskeiðunum verður skipt upp í þrjá hópa:
Spænska 1 er ætluð byrjendum 
Spænska 2 er ætluð þeim sem eitthvað eru komnir af stað
Spænska 3 er ætluð þeim sem lengra eru komnir 

Uppbygging námskeiða: tvisvar sinnum í viku í 5 vikur í senn.
Verð: 20.000 kr.
Staðsetning: Ásgarður, salur FEB í Stangarhyl 4, 110 Reykjavík.

Sjá nánari tímasetningu í Viðburðadagatalinu hér á heimasíðu FEB.

Skráning fer fram á skrifstofu FEB, í gegnum síma 588 2111 eða með því að senda póst á netfangið feb@feb.is