Matarklúbbar FEB fyrir karlmenn 60+ slá í gegn.

Sástu okkur ekki í Landanum?
Nýr hópur byrjar 8. maí 

Langar þig í matarklúbb með öðrum körlum?
Langar þig að læra að elda einfaldan íslenska mat?
Hefur þú lítið stuðningsnet og/eða ert óvanur að elda?
Eða langar þig bara að koma og vera með?

Þá er matarklúbbur FEB fyrir karlmenn 60+ eitthvað fyrir þig!
Þú þarft ekki að hafa reynslu af matseld til að taka þátt, bara að langa til að elda og/eða að læra að elda og að borða í góðum félagsskap. Leiðbeinandi er Kristján E. Guðmundsson sem er áhugakokkur á sama reki og þú og hefur ánægju af að elda og leiðbeina öðrum.

Klúbburinn verður starfræktur einu sinni í viku í fimm vikur, á miðvikudögum á milli kl. 16:30 – 19:00 í húsakynnum FEB í Stangarhyl 4, frá miðvikudeginum 10. maí. Tveimur dögum fyrr eða mánudaginn 8. maí kl. 13:00 verður haldinn upplýsingafundur fyrir þátttakendur, þar sem nánar verður farið yfir framkvæmdina og matseðill fyrir næstu fimm tíma verður ákveðinn.

Ummæli úr fyrri matarklúbbum: „Frábær matur, skemmtilegur félagsskapur og dýrmæt kennsla í hvernig á að bjarga sér í eldhúsinu! Kristjan E Gudmundsson kenndi af þvílíkri fagmennsku og snilld. Takk fyrir mig“ og ”Karlmenn áttu ekki að koma nálægt eldhúsinu – nú skemmta þeir sér á matreiðslunámskeiði”

Skráning fer fram á skrifstofu FEB, í gegnum síma 588 2111 eða með því að senda póst á netfangið feb@feb.is.

Ekki hika við að vera með – við tökum vel á móti þér.