Ný enskunámskeið að hefjast

Vekjum athygli ykkar á að ný enskunámskeið hefjast mánudaginn 5. okt. Nú bjóðum við einnig upp á námskeið fyrir byrjendur, ef þátttaka verður næg.

Skráning fer fram á skrifstofu FEB, í gegnum síma 588 2111 eða með því að senda okkur póst á netfangið feb@feb.is

Um er að ræða enskukennslu með áherslu á talað mál. Lagt er upp með að námið sé hagnýtt og að fólk nái að bjarga sér á spjalli við enskumælandi fólk, fremur en það sé að læra flókna málfræði. Námsgögn innifalin í verði.
Leiðbeinandi: Margrét Sölvadóttir
Uppbygging námskeiðs: tvisvar sinnum í viku í 4 vikur hvert námskeið.
Verð: 12.000 kr.