Myndlistarnámskeið, nýjung hjá FEB

Í vetur ætlar FEB að bjóða upp á almennt byrjendanámskeið í myndlist fyrir félagsmenn og hefur fengið Bjarna Daníelsson með sér í verkefnið sem kennara. Bjarni er lærður myndlistarmaður og kennari. Hann starfaði um árabil við myndlistarkennslu og var m.a. skólastjóri Myndlista- og handíðaskóla Íslands á árunum 1986 – 1994.
Tilgangur námskeiðsins er fyrst og fremst að auka færni og þor þátttakenda til að fást við myndlist sem gefandi frístundaiðju. Fjallað verður um skynjun og skoðun, skilning og sköpun sem samofna þætti í myndlistariðkun. Farið verður í nokkur grundvallaratriði myndgerðar, svo sem litafræði, myndbyggingu, fjarvídd, hlutföll mannslíkamans og formfræði tvívíddar og þrívíddar. Kynnt verður mismunandi tækni og rætt um hefðir og stefnur með vísan í listfræði og sögu eftir því sem við á. Þátttakendur leysa ýmis verkefni með skissubók og einföldum áhöldum svo sem blýanti, litblýöntum olíukrít og vatnslitum. Áhersla er lögð á samræður og skoðanaskipti í tímum.
Auk verkefna í tímum er reiknað með að þátttakendur vinni heimaverkefni milli kennslustunda og heimsæki söfn og sýningar meðan á námskeiðinu stendur.

Einungis er um takmarkaðann hóp þátttakenda að ræða, þannig að áhugasamir þurfa að hafa hraðar hendur og skrá sig sem fyrst.

Efni og áhöld: Stór og góð skissubók, A4 eða stærri. Einföld teikniáhöld og litir að eigin vali (frekari efniskaup í samráði við kennara).
Staðsetning: Húsakynni FEB í Stangarhyl 4.
Uppbygging námskeiðs: Einu sinni í viku á mánudögum í 3 klst. í senn (frá kl. 13 – 16) í 10 vikur. Fyrsti tími er mánudagurinn 18. september.
Verð: 42.000 kr.

Skráning fer fram á skrifstofu FEB, í gegnum síma 588 2111 eða með því að senda póst á netfangið feb@feb.is