Gleðifréttir – Zumba Gold og Sterk og liðug, hreyfinámskeiðin eru að byrja í dag 12. ágúst, eftir sumarfrí.

Enn eru nokkur pláss laus í leikfimina Sterk og liðug, sem er svolítil “falin perla” í hreyfiframboði FEB.

Hvað er Sterk og liðug?
Námskeið sem Tanya hefur þróað frá grunni og er ætlað dömum og herrum eldri en 60 ára, sem geta ekki lengur stundað hefðbundna líkamsrækt. Allir tímarnir eru sérsniðnir að þörfum þátttakenda. Þeir byrja á léttri upphitun og við tekur einföld leikfimi til að örva blóðrásina. Eftir það eru gerðar léttar rólegar styrkjandi æfingar með því markmiði að rétta úr bakinu, bæta líkamsstöðu og minnka verki í baki, hnjám og mjöðmum. Í tímunum eru notaðir lítlir Pilates boltar, teygjur með handföngum og létt handlóð.
Leiðbeinandi: Tanya Svavarsdóttir.
Uppbygging námskeiðs: Tvisvar sinnum í viku á þriðju- og fimmtud. kl. 10:45-11:30 í 16 vikur á haustönn 2025. Fyrsti tíminn er þriðjudaginn 12. ágúst 2025. Hægt er að kaupa hálft námskeið þ.e. fyrstu 8 eða seinni 8 vikurnar.
Verð: 42.500 fyrir 16 vikur (22.250 fyrir 8 vikur)

Hafðu samband við okkur núna og skelltu þér með.
Skráning fer fram á skrifstofu FEB, í gegnum síma 588 2111 (sími er opinn frá kl. 10:00-14:00 alla virka daga) eða með því að senda póst á netfangið feb@feb.is