FEB-ferðir, vegna forfalla voru nokkur sæti að losna

Vegna forfalla voru 4 sæti, eða tvö tveggja manna herbergi að losna í ferð okkar til Vestfjarða með viðkomu í Vigur, sem farin verður dagana 29. júní til 1. júlí – fyrstur kemur fyrstur fær.

Vestfirðir (29. júní til 1. júlí – þriggja daga ferð)
Þriggja daga ferð. Lagt af stað akandi úr Reykjavík klukkan 8:30, sem leið liggur um Borgarfjörð og Dali. Komið við á Sauðfjársetrinu á Ströndum þar sem hópurinn fær hádegishressingu og skoðar sýninguna sem tengd er sauðfjárbúskap, mannlífi og menningu á Ströndum. Þaðan er ekið yfir Steingrímsfjarðarheiði og um Ísafjarðardjúp. Komið við á áhugaverðum stöðum á leiðinni til Ísafjarðar og gist í tvær nætur á Hótel Ísafirði.
Daginn eftir er siglt út í Vigur og litast þar um áður en haldið er á ný til Ísafjarðar. Síðan skoðar hópurinn sig um á Ísafirði, áður en sest er að snæðingi i Tjöruhúsinu. Daginn eftir er svo haldið suður á leið. Fyrsti viðkomustaður er Flateyri, síðan Þingeyri og svo Dynjandi. Þaðan förum við svo yfir Dynjandisheiði og fáum hádegishressingu í Flókalundi. Leiðin liggur svo fyrir fjarðabotnana og um umtalaðan veg í Teigsskógi, aftur um Dalina og suður til Reykjavíkur.
Leiðsögumaður: Eiríkur Hreinn Helgason
Erfiðleikastig:  2 skór
Verð: 128.000 kr. á mann m.v. gistingu í tveggja manna herbergi

Bókaðu þig núna, svo þú missir ekki af þessu góða tækifæri til að heimsækja nokkrar af perlum Vestfjarða.
(Sjá texta allra neðst í þessari frétt)

Viljum einnig minna á fleiri FEB-ferðir seinna í sumar.

Fjallabaksleið nyrðri (9. júlí – dagsferð)
Enn á ný efnir FEB til dagsferðar um Fjallabaksleið nyrðri með brottför klukkan 8:30 úr Stangarhyl . Eins og áður er fyrsti viðkomustaður í Þjórsárdal. Þaðan verður ekið rakleiðis inn í Landmannalaugar, þar sem gestir taka upp nesti sitt og skoða sig um. Þá verður haldið um Jökuldali og Eldgjá í Hólaskjól. Síðan verður ekið niður Skaftártungu og um Vík . Kvöldmatur, sem er innifalinn í verði, bíður ferðalanga áður en haldið verður til Reykjavíkur. Um nokkuð langa ferð er að ræða og ekið um hálendisvegi yfir ár og læki. Þetta er ekki mikil gönguferð en þátttakendur þurfa að vera vel búnir fyrir hálendisferð.
Leiðsögumaður: Kári Jónasson
Erfiðleikastig:  1 skór
Verð: 25.000 kr.

Njáluslóðir Suðurland (16. júlí – dagsferð)
Dagsferð þar sem Guðni Ágústsson leiðir okkur á slóðir Hallgerðar Langbrókar og Njálsbrennu. Fyrsti viðkomustaður er Selfoss og svo næst Laugardælakirkja austan við Selfoss. Þar verður sagt frá Bobby Fischer. Þaðan verður haldið að Odda á Rangárvöllum, áður en komið er í Hótel Fljótshlíð í Smáratúni, þar sem litast verður um og snædd kjötsúpa. Ekið að Hlíðarenda og yfir í Gunnarshólma þar sem Gunnar sneri aftur. Þá liggur leiðin suður að Bergþórshvoli þaðan á Hvolsvöll í kaffi og pönnsur áður en haldið verður til Reykjavíkur.
Fararstjóri: Guðni Ágústsson
Verð: 19.500 kr.

Kerlingarfjöll og Hveravellir (15. til 16. ágúst – tveggja daga ferð)
Seinni hálendisferðin í ár er í Kerlingarfjöll og inn á Hveravelli dagana 15. og 16. ágúst. Lagt af stað úr Stangarhyl klukkan 9 að morgni og ekið sem leið liggur að Gullfossi og þaðan inn að Hveravöllum. Gengið um hverasvæðið, og kíkt m.a. á dvalarstað Eyvindar og Höllu, frægasta útilegufólks Íslandssögunnar. Síðan er haldið í Kerlingarfjöll þar sem snæddur verður kvöldverður og gist eina nótt. Daginn eftir er farið í gönguferð um Hveradali þar sem við blasir mikil litadýrð og bullandi hverir. Þátttakendur þurfa að vera vel útbúnir til gönguferða og vanir göngu í umhverfi sem þessu. Þarna er gengið upp og niður göngustíga sem hafa verið lagðir á undanförnum árum. Eftir hádegishressingur verður haldið suður á bóginn á ný með viðkomu á Geysi.
Leiðsögumaður: Jónas Valdimarsson
Erfiðleikastig:  3 skór
Verð: 87.000 kr. á mann m.v. gistingu í tveggja manna herbergi, en þau eru eingöngu eru í boði í þessari ferð

Ferð í Fjörður, Flateyjardal og Tröllaskaga (21. til 24. ágúst – fjögurra daga ferð)
Ferðin hefst og endar í Reykjavík, tekur fjóra daga, þrjár nætur í gistingu á Akureyri nánar tiltekið á hótel Kjarnalundi. Ferðast er í rútu allan tímann og farið á fjallabílum yfir í Fjörður. Fyrsta daginn er ekið frá Reykjavík til Akureyrar. Á öðrum degi er haldið út í Fjörður (Hvalvatnsfjörð) um Leirdalsheiði á vel útbúnum fjallabílum. Á þriðja degi er ekið norður Flateyjardalsheiði allt út á Flateyjardal. Á fjórða og síðasta degi er ekið aftur til Reykjavíkur en um Eyjafjörð að vestan, gegnum Dalvík og Ólafsfjörð, stoppað verður á Siglufirði en síðan ekið suður á ný um Þverárfjall og þjóðveg 1.
Leiðsögumaður: Gísli Jónatansson
Erfiðleikastig:  2 skór
Verð: 153.000 kr. á mann m.v. gistingu í tveggja manna herbergi.

Ganga frá Ölkelduháls yfir í Grafning – Kattartjarnaleið (vika 34. (í ágúst) – dagsferð)
Framundan er skemmtileg ganga um hina svokölluðu Kattartjarnaleið. Rútan skutlar okkur að upphafsstað sem er Ölkelduháls og sækir okkur á áfangastað. Frá Ölkelduhálsi er gengið framhjá fallegu hverasvæði á hálsinum og þaðan norður fyrir Ölkelduhálshnúk og neðan við Tjarnarhnúk og þar er staldrað við á útsýnisstað. Þaðan er gengið meðfram Álftatjörn og síðan tekinn örlítill krókur til að kíkja á Kattartjarnirnar tvær. Þá er komið að hinu stórkostlega Tindgili. Þegar komið er niður úr gilinu er skammt eftir að Ölfusvatnsánni og við fylgjum henni niður að endastað.
Um er að ræða um 12,5 km langa göngu þar sem byrjað er á hæsta punkti með lækkun smám saman alla gönguna. Undirlagið er fjölbreytt en ekki grýtt að ráði. Þetta eru mest eins og breiðir kindastígar sem fylgja landslaginu. Gangan sjálf tekur ca 6 klst með stoppum.
Ferðin verður farin virkan dag í viku 34 en veðurspáin fyrir eða um helgina í byrjun þeirrar viku verður látin ráða nákvæmum degi.
Útbúnaður: Góðir gönguskór eða utanvegahlaupaskór, góður útivistarfatnaður og göngustafir. Einnig þarf að hafa með nesti og drykki til að nærast meðan á göngunni stendur.
Leiðsögumaður: Einar Skúlason
Erfiðleikastig:  3 skór
Verð: 18.500 kr.

Agnes og Friðrik (28. til 29. ágúst – tveggja daga ferð)
Enn á ný efnum við til ferðar á slóðir Agnesar og Friðriks í Húnaþingi. Bók Magnúsar Ólafssonar um  atburðina á Illugastöðum og Þrístöpum og þar í kring, varð kveikjan að þessari ferð að nýju. Ekið  verður sem leið liggur norður yfir heiðar og komið við á Selasetrinu á Hvammstanga. Síðan haldið Vatnsneshringinn með viðkomu á ýmsum stöðum s.s. Illugastöðum, við Hvítserk og Borgarvirki. Haldið að Laugarlandi , þar sem hópurinn gistir. Þar kemur Magnús Ólafsson fyrrverandi bóndi á Sveinsstöðum og sagnaþulur til móts við hópinn og leiðir okkur í allan sannleikann um síðustu aftökuna á Íslandi, þeirra Agnesar og Friðriks, og fer daginn eftir með hópnum að Þrístöpum og um Vatnsdal. Þá verður haldið í kirkjuna á Þingeyrum og síðan að Kolugljúfrum í Víðidal, áður en farið verður aftur heim á leið.
Leiðsögumaður: Kári Jónasson
Erfiðleikastig:  1 skór
Verð: 69.000 kr. á mann m.v. gistingu í tveggja manna herbergi en 78.500 kr. ef gist er í einbýli

Bókanir fara fram á skrifstofu FEB, í gegnum síma 588 2111 (sími er opinn frá kl. 10:00-14:00 alla virka daga) eða með því að senda póst á netfangið feb@feb.is.